Hulunni var svipt af teikningum nýrrar Þjóðarhallar í dag en þetta glæsilega mannvirki á að rísa á næstu árum í hjarta Laugardals. Tilboð Íslenskra aðalverktaka varð fyrir valinu og mun félagið sjá um Honnen og byggingu hallarinnar. Þeir verða að hafa hraðar hendur því eftir fimm ár ætla Íslendingar að halda heimsmeistaramót í handbolta. Sigurður Ragnarsson stjórnarformaður ÍAV kom til okkar.
Stjórnvöld víða um heim skoða hvernig setja megi skorður við símanotkun barna og unglinga. Bretar hafa lagt til að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en sextán ára en Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands segir miðlana auka á óhamingju barna. Á sama tíma skoða Íslendingar hvernig eigi að útfæra símabann í grunnskólum. Reglugerð þess efnis er nú í til umsagnar í Samráðsgáttinni. Við ræddum við Ingibjörgu Evu Þórisdóttur, dr. í sálfræði og lýðheilsufræðingur hjá Planet Youth.

Alvarlega veikleika má finna í frumvarpi til laga um réttindavernd fatlaðs fólks að mati Guðmundar Ármanns Péturssonar, formanns Landssamtaka Þroskahjálpar. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu segir hann það umhugsunarefni að á sama tíma og Alþingi ætli að skipa enn eina nefndina til að rannsaka aðbúnað barna sem vistuð voru á einkaheimilum, skuli stjórnvöld veikja þá réttindagæslu sem á að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Við ræddum við Guðmund Ármann.
Frá árinu 2020 hafa margir einstaklingar með ADHD og aðrir sem taka lyf samkvæmt læknisráði búið við óvissu og jafnvel misst ökuréttindi vegna ákvæða í umferðarlögum og framkvæmd þeirra. ADHD samtökin hafa um árabil kallað eftir úrbótum og fagna því að loks séu komin fram drög að reglugerð um málið. Samtökin telja þó að enn vanti verulega upp á að rétt sé að öllu staðið í reglugerðinni. Formaður ADHD samtakanna, Vilhjálmur Hjálmarsson, kom í Síðdegisútvarpið.
Trúbadorinn Siggi Björns hefur haft tónlist að atvinnu í hátt í fjóra áratugi og er án efa einn víðförlasti tónlistarmaður landsins. Hann er fæddur og uppalinn á Flateyri en býr og starfar í dag í Þýskalandi, þaðan sem hann hefur haldið úti öflugum tónlistarferli um árabil. Á ferli sínum hefur Siggi gefið út fjölda platna, komið fram í tugum landa víðs vegar um heiminn og starfað með mörgum af fremstu tónlistarmönnum Íslands. Hann er þekktur fyrir kraftmikla sviðsframkomu, fjölbreytta lagaskrá og óþreytandi ástríðu fyrir tónlistinni. Á sjómannadaginn síðasta hélt hann tónleika í Salurinn við frábærar undirtektir og fullt hús gesta. Siggi Björns kom til okkar.