Loðnuvertíðin er hafin og margir segja kærkomin eftir erfið undanfarin ár. Enginn kvótivar gefinn út árið 2024 og í fyrra var hann svo lítill að lítið náðist af hrognum. Nú er vertíðin hins vegar komin á fullt, skip og vinnslur á Austfjörðum hafa verið á fullu undanfarna daga og japanskir kaupendur eru mættir til að fylgjast með vinnslunni. Við hringdum austur og heyrðum í Oddi Einarssyni yfirverkstjóra í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað.
Atvinnuleysi hefur aukist á undanförnum mánuðum. Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar voru um 17.400 manns án vinnu í síðasta mánuði, sem jafngildir 7,3 prósenta atvinnuleysi. Það er töluverð aukning frá sama tíma í fyrra. En hvernig horfir staðan við í iðnaði og tæknigreinum? Við ræddum við Hilmar Harðarson, formann Félags iðn- og tæknigreina og formann Samiðnar.
Er sandurinn í Reynisfjöru farinn að skila sér á ný og náttúran farin að laga til eftir austanáttirnar sem skoluðu stórgrýtinu upp og stórbreyttu landslaginu? Íris Guðnadóttir, einn landeigenda í Reynisfjöru var í símanum.
Erfðamál eru eitthvað sem margir fresta að hugsa um en geta skipt sköpum þegar á reynir. Hvenær er nauðsynlegt að gera erfðaskrá? Gildir sama fyrir alla eða eru tilvik þar sem það er sérstaklega mikilvægt, til dæmis í samsettum fjölskyldum? Við ætlum að fara aðeins yfir helstu atriðin sem gott er að hafa í huga. Þær Sigríður Anna Ellerup lögfræðingur og Bryndís Bachmann lögmaður eru sérfræðingar í þessum málum og þær komu til okkar.
Í nýrri skýrslu ESA, Eftirlitsstofnunnar EFTA, segir að eftirliti með ávaxta og grænmetisframleiðslu hér á landi sé ábótavant. Og er þar gerðar tillögur fyrir stjórnvöld til að bæta úr. Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtakanna, ræddi þessi mál við okkur.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Hörpu miðvikudagskvöldið 18. mars næstkomandi. Tilnefningar eru gerðar opinberar núna seinni partinn og Jóhanna Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Íslensku tónlistarverðlaununum fór yfir það helsta.