Síðdegisútvarpið

Ásuverðlaunin 2026, ný úttekt á veikindarétti opinberra starfsmanna og Andrew Mountbatten Windsor

Frétt dagsins er líklega í morgun var Andrew Mountbatten Windsor handtekinn vegna gruns um brot í opinberu starfi og fréttaflutningur hefur verið stöðugur af þessu máli í allan dag Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður kom til okkar og fara yfir nýjustu vendingar í málinu.

Krabbamein í ristli og endaþarmi eru býsna skæð mein og þriðja algengasta dánarorsök úr krabbameinum hér á landi. En hver er staðan á innleiðingu ristilskimana hér á landi? Sigríður Gunnarsdóttir er forstöðumaður Rannsókna og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins hún kom til okkar í þáttinn í dag.

Grófin Geðrækt á Akureyri eru með vitundarvakningu um geðheilbrigði í gangi undir nafninu Lausa skrúfan. Þar er fólk hvatt til þess huga geðheilsu sinni og hjálpa við útrýma alls kyns fordómum sem við kunnum hafa sjálf sem og aðrir í samfélaginu. Þær Inga Bryndís Árnadóttir og Sonja Rún Sigríðardóttir, verkefnastjórar hjá Grófinni Geðrækt á Akureyri, sögðu okkur nánar frá.

Viðskiptaráð Íslands vill samræma veikindarétt opinberra starfsmanna við það sem gildir á almennum vinnumarkaði. Í nýrri úttekt ráðsins, sem byggir á gögnum Hagstofunnar, kemur fram veikindafjarvera í opinbera geiranum tvöfalt algengari en í einkageiranum. Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs kemur til okkar.

Fyrr í dag hlutu þeir Sigurður Reynir Gíslason og Grímur Sæmundsen Ásuverðlaunin 2026. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til vísinda og nýsköpunar í þágu íslensks samfélags. Sigurður Reynir er jarðvísindamaður og frumkvöðull í rannsóknum á loftslagsmálum og kolefnisbindingu, meðal annars í gegnum CarbFix-verkefnið, sem vakið hefur alþjóðlega athygli. Grímur Sæmundsen er stofnandi Bláa Lónsins og hefur haft lykiláhrif á uppbyggingu heilsutengdrar ferðaþjónustu á Íslandi, þar sem náttúra, heilsa og nýsköpun fara saman. Þeir komu til okkar.

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu -réttindafélags og Samfylkingarmaður, hefur ekki hlotið náð hjá uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar um sæti á lista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Guðmundur segir í dag formaður uppstillingarnefndar flokksins reyni blekkja flokksfólk og fari með mikil ósannindi í samtali við Vísi. Guðmundur Ingi kom til okkar.

Birt

19. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,