Margir hafa gaman af því að fylgjast með því sem er að gerast í náttúrunni í beinu en þær gleðifréttir hafa borist að streymi úr hinu merkilega æðarvarpi á Hrauni á Skaga er komið í gang líkt og í fyrra. Í ár eru myndavélarnar orðnar tvær og sjónarhornin því fleiri og við heyrðum í Herdísi Steinsdóttur, líffræðingi og æðarbónda, og spurðum hana út í æðavarpið og hægvarpið frá þessum merkilega stað.
Dr. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, skrifar opið bréf til formanns utanríkismálanefndar Alþingis, Pawel Bartoszek, á Vísi í dag. Þar bendir hann Pawel á að spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst n.k. felur enn þá, eftir meðferð utanríkismálanefndar, í sér fullyrðingu. Það megi ekki vera fullyrðing í hreinum rannsóknarspurningum. Við spurðum Hauk nánar út í þetta og af hverju spurning í þjóðaratkvæðagreiðslu megi ekki fela í sér fullyrðingu og hver séu fræðin á bakvið slíkar spurningar.
Um næstu helgi fer fram sjávarréttahátíðin Matey í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjar hafa markað sér sess sem einn áhugaverðasti mataráfangastaður landsins og þar sem ferskasta hráefni landsins mætir skapandi matreiðslu í hæsta gæðaflokki, segir á síðunni vistivestmannaeyjar.is. Við fengum Sigurð Gíslason vert á veitingastaðnum Gott í Eyjum til að segja okkur betur frá.
Klukkan hálf níu í fyrramálið mun Seðlabankinn kynna ákvörðun peningastefnunefndar varðandi stýrivexti sem munu gilda fram í ágúst. Við fengum Konráð Guðjónsson, hagfræðing, til að spá í ákvörðunina og til að lesa í stöðuna á hagkerfinu.
Leikhúslistakonur 50+ er hópur reyndra leikhúslistakvenna sem setur á svið leikrit og gjörninga fyrir almenning í Reykjavík og víðar. Í gær voru þær tilnefndar til hvatningarverðlauna Grímunnar og við fengum tvær þeirra í heimsókn þær Rósu Guðnýju Þórsdóttur og Eddu Þórarinsdóttur
Þá kom sjónvarpspekingurinn okkar, framleiðandinn Ragnar Eyþórsson, til okkar. Hann benti okkur á sjónvarpsseríur, nýjar sem gamlar, sem gott er að hámhorfa í sumar.