Staða húsnæðismála lögreglunnar á Seyðisfirði er ein sú alvarlegasta á landinu. Þar sinnir lögregla mikilvægu landamæraeftirliti og hefur undanfarna mánuði staðið í ströngu vegna fíkniefnainnflutnings um höfnina. Við ræddum við Jónínu Brynjólfsdóttur, varaþingmann Framsóknarflokksins og forseta sveitarstjórnar Múlaþings.
Kröftugur skjálfti skók suðvesturhornið klukkan korter í tvö og fannst víða. Skjálftinn er einn af ríflega 500 sem hafa mælst í hrinu á Mosfellsheiði, vestan við Húsmúla, sem hófst í gærmorgun. Við ræddum við Benedikt Halldórsson, fagstjóra jarðskjálftavár hjá Veðurstofunni.
„Upp úr tilraunaglasinu – Hagnýting rannsókna“ er heitið á erindi sem Hildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís og lektor við Háskóla Íslands, flytur á málþingi Matís á morgun. Erindið fjallar um hvernig rannsóknir og vísindavinna verða að raunverulegum lausnum, hagnýtum afurðum og verðmætum fyrir samfélag og atvinnulíf. Hildur Inga fræddi okkur um verðmætasköpun úr hliðarhráefnum í matvælavinnslu sem dregur úr sóun.
Síðustu átta ár hefur engin vinna farið fram sem miðar að því að bæta dýpkunina við Landeyjahöfn. Sigurður Áss Grétarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri siglingasviðs hjá Vegagerðinni, segir stjórnvöld hafa lítinn áhuga á að fylgja þessu verkefni eftir og að ekki hafi verið heldur staðið rétt að dýpkun við höfnina. Öldufarið sé ekki alltaf skýringin á því hvers vegna sum árin fyllist hafnarmynnið af sandi og önnur ekki. Við fórum nánar yfir þetta með Sigurði hér á eftir.
Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir 10 daga og spennan er farin að magnast. Við ætlum að fara yfir það helsta sem þarf að vita fyrir mótið, hverju má búast við og hvaða lið og leikmenn vert er að fylgjast sérstaklega með. Helga Margrét Höskuldsdóttir heldur utan um umfjöllun HM hér á Ruv ásamt Eddu Sif Pálsdóttur og við ætlum að ræða við Helgu um fyrirkomulag mótsins og stemninguna í aðdragandanum og helstu sýningartíma á Íslandi.
Fyrstu ilmtónleikar íslandssögunnar fara fram í Austurbæ á föstudaginn. Tónleikarnir eru hluti af Listahátíð sem var sett á laugardaginn og eru að undirlagi Ilmgerðarinnar Fishersund. Tónlistarmennirnir Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm flytja tónverk sín sem endurspegla óefnislegan ilm Fischersunds. Sindri Már Sigfússon og Lilja Birgisdóttir komu til okkar.