Einar Dagur Brynjarsson, sautján ára Verzlingur, hjólar nú hringinn í kringum landið til styrktar Barnaspítala Hringsins. Hann lagði af stað 17. Júní en með í för eru vinkonur Einars sem fylgja honum eftir á bíl, og afi hans sem er á húsbíl. Við hringdum í kappann.
Í áratugi hafa hatrammar deilur staðið um Vatnsendajörðina sem hafa margsinnis endað fyrir dómstólum. Deilurnar eiga rætur að rekja til umdeildrar erfðaskrár, sem var gerð árið 1938, og leggur kvaðir á erfingja sem verður sífellt erfiðara að framfylgja. Í þáttaröðinni Sögur úr raunveruleikanum fer Þóra Tómasdóttir yfir þau álög sem virðast hvíla á Vatnsenda. Hún kom til okkar og sagði okkur betur frá málinu.
Vilt þú hýsa skiptinema? AFS leitar nú að fjölskyldum fyrir skiptinema á Íslandi. Allar fjölskyldur eru hvattar til að sækja um en á heimasíðu samtakanna segir að það sé í raun ekkert til sem kallist dæmigerð-AFS-fósturfjölskylda. Ingunn Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og Sólveig Vilhjálmsdóttir, deildarstjóri hýsinga frá AFS mættu til okkar.
Sólin er hæst á lofti á þessum tíma árs og þá mjög mikilvægt að nota sólarvörn. En úrvalið virðist endalaust. Hvaða sólavarnir virka og hvað er bara tískubóla? Þóra Björg Ingvadóttir lyfjafræðingur sagði okkur frá því helsta sem maður þarf að hafa í huga.
Erlendir eggjaþjófar koma árlega til landsins í þeim tilgangi að taka undan íslenskum fuglum. Í síðustu viku handtók lögreglan á Austurlandi par sem var á leið úr landi með Norrænu með ríflega hundrað egg í sérútbúnum hitatöskum. Parið var yfirheyrt samdægurs og búnaður þeirra haldlagður. Óskar Þór Guðmundsson lögreglufulltrúi á Austurlandi var á línunni.
Sólinni, birtunni og sumrinu verður fagnað á sumarsólstöðublótum á sunnudag. Elfar Logi Hannesson Haukadalsgoð helgar eitt slíkt blót í Haukadal í Dýrafirði. Við ræddum við goðið um þessa miðsumarhátíð.
Um helgina eru tónlistarhátíðir vítt og breytt um landið og ein þeirra er kammerhátíðin Við Djúpið. Hátíðin var haldin fyrst árið 2003 en þar mætast ný og gömul tónlist auk þess sem boðið er upp á tónlistanámskeið og tónlistarleikjanámskeið. Greipur Gíslason stjórnandi hátíðarinnar var á línunni.