2. febrúar 2026
Epstein skjölin, Krísuvíkursamtökin safna og bílnúmeralestur hjá Sorpu
Friðjón R, Friðjónsson, sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum ræddi við okkur um stöðuna í bandarískum stjórnmálum eftir nýjustu losun stjórnvalda á Eptstein skjölum. Farið er að bera á afsögnum vegna þeirra, en þó ekki í Bandaríkjunum sjálfum. En er pendúlinn farinn að sveiflast gegn Trump stjórninni?
Niðurstöður úr nýrri könnun meðal talmeinafræðinga sýna að 82% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga hafa litla trú á stjórnvöldum, 70% sjálfstætt
starfandi talmeinafræðinga eru ósáttir með kjör sín og um 40% vinna að meðaltali launalaust einn dag í viku. Og á sama tíma og biðlistar lengjast í huga 40% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga að hætta störfum. Þau Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku stéttarfélags og Ragnheiður Bjarnadóttir, formaður samninganefndar sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga, komu til okkar.
Nýlega bárust fréttir af því að opinberri vinnumarkaðurinn væri með tvöfalt hærra veikindahlutfall en hin almenni og haft er eftir Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra að brýnt sé að lækka þetta hlutfall í ljósi þess að slíkt kostar mikla fjármuni. En þetta snýst ekki bara um fjármuni , heldur líðan fólks og í dag spyrjum við hvernig er best að bregðast við þegar í óefni er komið og hvernig er hægt að koma í veg fyrir að endurtekin veikindi herji á fólk? Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur hjá Líf og sál kom til okkar og fræddi okkur um það.
Frá og með 1. mars nk. mun SORPA taka í notkun bílnúmeralesara á endurvinnslustöðvum. Markmiðið er að greina hvort viðskiptavinir komi á bíl skráðum á heimili á höfuðborgarsvæðinu, eða á bíl sem tengist fyrirtæki eða íbúum utan höfuðborgarsvæðisins. Gunnar Dofri Ólafsson er samskiptastjóri Sorpu hann var á línunni.
Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar. Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu „Drekkum minna – gefum meira“. Elías Guðmundsson er framkvæmdastjóri Krýsuvíkur var á línunni.