Síðdegisútvarpið

1.apríl, verðlaunahús og nýju þættirnir Hæst

Fréttamiðlar, fyrirtæki, samstarfsfólk, vinir og fjölskyldur keppast við gabba fólk því í dag er 1.apríl. En hvaðan kemur þessi hefð? Þjóðfræðingurinn Jón Jónsson var á línunni frá Hólmavík.

Donald Trump, bandaríkjaforseti, segist íhuga það alvarlega Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Hann hefur lengi talað gegn bandalaginu og sagt hin aðildarríkin ekki leggja nóg til NATO og hefur hann ítrekað hótanir sínar eftir sum aðildaríkja NATO hafi ekki vilja veita bandarískum herafla afnot af herflugvöllum í árásum á Íran ljáð máls á því koma bandaríkjamönnum til aðstoða við Hormuz sund þar sem olíuflutningaskip fara um. Við hringdum í Albert Jónsson en hann er fyrrum sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnamálum..

Páskarnir eru framundan og landsmenn á faraldsfæti eins og oft áður á þessum tíma. Höfuðstaður norðurlands er ávallt vinsæll þegar kemur páskahelginni. Davíð Rúnar Gunnarsson hjá Viðburðarstofu Norðurlands var á línunni.

Hæst eru nýir íslenskir sjónvarpsþættir sem fjalla um menntaskólakennara sem taka sig saman og ræna nemendafélagið. Hannes Óli Ágústsson og Friðgeir Einarsson leika tvö aðal hlutverkin auk þess skrifa þættina.

Háteigsvegur 59 hlaut evrópsk hönnunarverðlaun frá New European Bauhaus á dögunum í flokknum hringrásarsamfélagið. Í umsögn dómnefndar segir í verkefninu sameinist „umhverfisábyrgð, samfélagsleg inngilding og hágæða arkitektúr”. Það er Arnhildur Pálmadóttir arkitekt sem hannaði húsið og ræddi þetta verðlaunahús.

Nói Siríus lenti í þeim leiðu mistökum prenta óvart gervigreindar málshætti í hluta af páskaeggjum sín. Málshættir á borð við “Sá er glataður tíminn sem farið hefur í scroll” og “Ekki er allt sem trendar þess virði fylgja”. Eða hvað? Rúnar Kristmundsson markaðsstjóri Nóa Siríus sagði okkur frá þessu aprílgabbi og hvernig málsháttagerð er háttað hjá súkkulaðiverksmiðjunni.

Siggi Gunnars var loks í beinni frá Ísafirði og rak inn nefið í Aldrei búðinni, sem selur varning tengdan Aldrei fór ég suður hátíðinni, en hún verður sett á föstudaginn.

Birt

1. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,