
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Nýtt varnarsamkomulag Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna var undirritað í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Vonir eru bundnar við að þessi áfangi bindi enda á deilurnar um Grænland. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur var á línunni.
Þættirnir Sönn íslensk sakamál nutu mikilla vinsælda rétt eftir aldamót og Sigursteinn Másson varð þá eins konar andlit glæpa á Íslandi. Hann hefur veitt þáttunum framhaldslíf í hljóðbókaformi. Í fyrsta þætti nýrrar seríu ræðir hann við Ming Ting Mancel sem var í júlí dæmd í tólf ára fangelsi fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025 í samverknaði við eiginmann sinn. Við ræddum við Sigurstein.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík opnar á morgun með sérstakri opnunarhátíð í Háskólabíói. Opnunarmyndin er heimildarmyndin Hinsta ferðin á K2eftir bandaríska verðlaunaleikstjórann Amir Bar-Lev. Myndin fjallar um hina sögulegu tilraun Johns Snorra Sigurjónssonar og pakistönsku feðganna Muhammad Ali Sadpara og Sajid Sadpara til að verða fyrstir til að klífa fjallið K2 að vetri til árið 2021. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands og vinur fjölskyldu Johns Snorra mun ávarpa gesti við upphaf sýningarinnar. Hann kíkti við.
Nýtt áhættumat fyrir Grindavík hefur vakið vonir um öflugra bæjarlíf en þar kemur meðal annars fram að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í bænum séu ásættanlegar. Grindvíkingurinn Sigurbjörn Daða Dagbjartsson, sem einnig þekktur sem tónlistarmaðurinn Sibbi &, sagði frá því hvernig þessar fréttir lögðust í hann.
Hólmfríður byrjaði daginn á Laugardalsvelli í morgun þar sem íslenska karlalandsliðið í fótbolta var að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Eistum á laugardaginn. En þetta var samt kannski heldur óvenjulegur æfingadagur þar sem fyrstu klukkutímarnir fóru í að safna gögnum fyrir rannsókn á vegum Gatorade. Rannsókn sem gengur út á að afla upplýsinga um svita og sölt sem leikmenn missa þegar þeir hreyfa sig.
Við höfum orðið vör við nostalgíu á samfélagsmiðlunum því fyrrum nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð eru að fylla miðlana af myndum af sér frá árum sínum í skólanum. Tilefnið er sextíu ára afmæli skólans sem er á morgun með tilheyrandi hátíðarhöldum. Á meðal þeirra sem minntust menntaskólaáranna með þessum hætti á Facebook eru þau Gerður Kristný rithöfundur og Jón Yngvi Jóhannsson lektor og bókmenntafræðingur. Jón Yngvi deildi mynd af sér með mjög töff klippingu, sem hann skartar ekki lengur og Gerður Kristný deildi mynd af sér frá Menntaskólaárunum þar sem hún situr á Hressingarskálanum með hönd undir kinn.
Umsjón: Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Júlía Margrét Einarsdóttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.