Mánaðarskýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS. fyrir mars mánuð er komin út en þar kemur meðal annars fram að fasteignamarkaðurinn er rólegur um þessar mundir, en lítill verðþrýstingur hefur mælst á markaðnum undanfarna mánuði. Á byggingarmarkaði hafa færri nýjar íbúðir orðið fullbúnar á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs samanborið við fyrri ár. En framboð á íbúðamarkaði hefur aukist um tæp 18% frá áramótum. Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS kom til okkar og fór yfir helstu tölu með okkur.
Verulegur munur er á milli skóla og á milli sveitarfélaga á kostnaði sem fellur á fjölskyldur vegna þátttöku bara í skólasamfélaginu, kostnaður sem tengist ekki kjarna skyldunámsins heldur félagslegri þátttöku barna. Þetta er meðal þess sem stýrihópur á vegum stjórnvalda sér í vinnu sinni að aðgerðaráætlun gegn fátækt barna. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, fer fyrir stýrihópnum og fór yfir málið með okkur.
Músíktilraunir fara af stað á nýjan leik á morgun föstudag. Árni Matthíasson, tónlistarspekúlant og dómari þar sagði okkur ýmislegt um Músiktilraunir en Árni hefur verið viðloðinn keppnina í yfir 40 ár.
Hvað dettur okkur í hug þegar við hugsum um heilann ?– Minni, einbeiting, streitu eða eitthvað allt annað? Og hvað getum við sjálf gert til að styrkja hann og halda honum heilbrigðum í daglegu lífi? María K. Jónsdóttir, taugasálfræðingur og prófessor við HR, var á línunni og svaraði því.
Stockfish Film Festival & Industry Days er árleg kvikmynda-og bransahátíð fagfólks í kvikmyndageiranum verður í gangi í Bíó Paradís og víðar næstu 10 dagana í samvinnu við öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi. Dögg Mósesdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar kom í Síðdegisútvarpið.
Tónabíó, eitt helsta kvikmyndahús borgarinnar á sínum tíma, hefur fengið nýtt líf sem lifandi samkomustaður fyrir tónleika og viðburði. Við ætlum að kíkja á söguna og nýja hlutverkið – Einar Örn Sigurdórsson einn af aðstandendum Tónabíós kom til okkar í Síðdegisútvarpið í dag.