Síðdegisútvarpið

Frelsissvipting í Reykholti, minkamálið og Kristján Kristjánsson gerir upp ferilinn

Hljóðupptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar varpa ljósi á atburðarásina þegar palestínskur maður var frelsissviptur og pyntaður í Reykholti í apríl árið 2024. Andri er einn af sex Íslendingum sem hafa verið ákærðir fyrir hafa beitt manninn grófu margþættu ofbeldi, fjárkúgað hann og frelsissvipt. Eva Björk Benediktsdóttir var í dómsal og fylgdist með fyrsta degi aðalmeðferðar í Hérðasdómi Suðurlands í dag.

Tæpar þrjár vikur eru liðnar frá því fjölda minka var sleppt lausum í Mosfellsdal. Allt kapp var lagt á fanga dýrin með skjótum hætti og var sérþjálfuðum minkahundum meðal annars beitt í þeirri aðgerð. En hver er staða málsins í dag? Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar kom til okkar.

Af hverju mæta sum börn ekki í afmæli bekkjarfélaganna sinna? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingkona Flokks fólksins skrifaði áhugaverða grein á Vísi fyrir helgi en þar vekur hún athygli á því kostnaður við afmælisgjafir geti orðið hindrun fyrir þátttöku barna og þannig verið dulbúin birtingarmynd fátæktar. Við heyrðum í Kolbrúnu í þættinum í dag.

Í gær kvaddi Kristján Kristjánsson Sprengisand sem var á dagskrá Bylgjunnar á sunnudagsmorgnum eftir tæplega áratug við stjórnvölinn. Hann hefur stýrt hundruðum þátta og rætt við þúsundir gesta á þessum tíma. Kristján kom til okkar og fór yfir farinn veg.

Í lok þáttar kom til okkar nýkringdur Íslandsmeistari í golfi karla Dagbjartur Sigurbrandsson.

Birt

17. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,