
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fimm menn eru grunaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk í Bretlandi um helgina. Þeir voru handteknir aðfaranótt sunnudags í grennd við Fairford-herstöðina sem bandaríski flugherinn notar. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að mennirnir hefðu ætlað að valda miklum skaða. Wes Streeting varnarmálaráðherra Bretlands, sagði við BBC í morgun að það væri ekki tímabært að upplýsa um smáatriði sem tengjast rannsókninni. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var á línunni frá Bretlandi.
Stjórnendur Haga og Festis hafa ákveðið að lækka verð í verslunum sínum, Bónus og Krónunni á hátt í þúsund vörum um tvö prósent tímabundið til áramóta. Þetta eru viðbrögð fyrirtækjanna við hvatningu verkalýðsfélaga um að fyrirtæki landsins haldi aftur af verðhækkunum til að sporna gegn verðbólgu og liðka fyrir því að kjarasamningum verði ekki sagt upp. En mun þetta hafa raunveruleg áhrif á matarkörfuna? Bjarki Steinn Benjamínsson verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ skoðar málið með okkur.
Gigtarfélag Íslands fagnar 50 ára afmæli á þessu ári. Meðferð margra gigtarsjúkdóma hefur tekið stórstígum framförum og þekking aukist en hvað hefur áunnist á þessum tíma í meðferð og meðhöndlun á gigt og hver er staðan í dag? Stefán Magnússon framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands kom til okkar.
Gefum íslensku séns, átak á Vestfjörðum sem ætlað er að efla íslenskukunnáttu fólks af erlendum uppruna, er að færa út kvíarnar. Nú hefur verið stofnað formlegt félag um þetta átak sem nú á að ná víðar um landið. Við ræddum við Ólaf Guðstein Kristjánsson upphafsmann átaksins.
Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hefur fækkað um meira en 80% á tveimur árum. Þessi árangur hefur vakið athygli og okkur leikur forvitni á að vita hvernig þetta var gert. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar þakkaði starfsfólki velferðarsviðs sérstaklega fyrir árangurinn á bæjarstjórnarfundi. Hilma H. Sigurðardóttir er teymisstjóri virkni-og ráðgjafateymis á velferðarsviði Reykjanesbæjar. Hún var á línunni.
Alexander Fannberg Gunnarsson er ungur gagnasérfæðingur sem sem tók sig til þegar hann flutti að heiman og gerði sinn eigin gagnagrunn fyrir matarplön sín því hann nennti ekki að spá í hvað ætti að vera í matinn á hverjum degi. Eitthvað sem við öll könnumst við. Hann hafði samband við helstu matvöruverslanir til að athughuga hvort þær byðu uppá lausnir sem hann gæti nýtt sér í að hanna matarvikuplan t.d. Og lausnin er nú komin undir nafninu Hagplanið. Alexander sagði okkur nánar af þessu.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.