Síðdegisútvarpið

Vestfirsk skata,Árstíðir,brúna sósan og jól allan ársins hring í Jólagarðinum

Við byrjuðum fyrir vestan nánar tiltekið á Tjöruhúsinu þar sem Haukur Sigurbjörn Magnússon vert sem hefur staðið í ströngu í dag við matreiða skötu ofan í Vestfirðinga.

Það eru jól allan ársins hring í Jólagarðinum í Eyjafirði en hvernig skyldi stemningin vera þar þegar svo stutt er til jóla? Á línunni hjá okkur var Benedikt Grétarsson sem er aðal maðurinn í Jólagarðinum. Hvernig hófst þetta ævintýri allt saman og hlakkar Benedikt til jólanna ?

Óli Þór Árnason veðurfræðingur kom til okkar og fór yfir jólaveðrið sem verður hundleiðinlegt.

Sérstakur matreiðslumeistari þáttarins, Óskar Finnsson, mætti til okkar í síðasta sinn fyrir jólin en hann var enn í sósunum og er það hin klassíska brúna sósa sem hann hjálpar okkur með.

Sigurður Þorri Gunnarsson er staddur fyrir norðan á Akureyri og við settum okkur í samband við hann.

Tveir af meðlimum Árstíða þeir Gunnar Már Jakobsson og Daníel Auðunsson kíktu til okkar í smá spjall og spilerí. Árstíðir eru með sína árlegu tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík milli jóla og nýárs auk þess sem þeir verða í Akureyrarkirkju. Það er fátt ljúfara en heyra í Árstíðum og því hlökkuðum við mikið til þá í heimsókn.

Vikan hefur gefið út Völvuspá sína fyrir næsta ár og Steinunn Jónsdóttir blaðamaður kom til okkar og fór yfir það sem rættist hjá Völvunni árið 2025 og gaf okkur aðeins innsýn í spánna fyrir árið 2026.

Frumflutt

23. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Þórður Helgi Þórðarson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,