Kröftugir hafstraumar í þrálátum austanáttum hafa á skömmum tíma gjörbreytt Reynisfjöru í Mýrdal. Sjórinn hefur skolað burt tugum metra lands, myndað háan rofbakka og látið þunga steina rúlla um við flæðarmál.
Í Morgunblaðinu í dag er rætt við leiðsögumanninn Snorra Stein Sigurðsson sem segir staðinn gjörólíkan því sem hann var. Við ræddum við Íris Guðnadóttur sem er einn landeiganda í Reynisfjöru og spyrja betur úr í stöðuna þar eystra.
Á föstudaginn fengum við til okkar Guðbjörgu Lilju Erlendsdóttur, samgöngustjóra Reykjavíkur, til að ræða tillögur að deiluskipulagi Borgalínu um Suðurlandsbraut sem eru nú komnar í auglýsingu og óskað er eftir athugasemdum. Sturla Gunnar Eðvarðsson, sem er forstöðumaður þróunnar hjá EIK fasteignafélagi hf, skrifaði grein í Morgunblaðið í dag um þessar tillögur. Hann fór yfir málið með okkur.
Á dögunum rákumst við í Síðdegisútvarpinu á nýja heimasíðu sem heitir flakkid.is sem er vettvangur fyrir Íslendingar á flakki til að finna og auglýsa húsnæði víða um heim. Margir sem hafa farið af stað til að skoða húsnæði til leigu eða kaups á erlendri grundu hafa þurft að fara inn á margar vefsíður til þess að leita. Kristbjörg Óskarsdóttir er konan á bakvið síðuna. Hún var á línunni hjá okkur.
Við fengum áhrifamikla frásögn flugfarþega vélar sem þurfti að nauðhemla í flugtaki þegar í ljós kom að flugtakið fór fram á akbraut á flugvellinum en ekki á flugbraut. Níu íslendingar voru um borð og ein þeirra Sólrún Kristjánsdóttir, forstjóri Veitna, sagði okkur frá þessari lífsreynslu. Í dag fáum við til okkar Jóhannes Bjarna Guðmundsson, atvinnuflugmann og flugkennara, en við spurðum hann hvernig svona lagað geti gerst. Mikill munur er á akbraut og flugbraut í merkingum og lýsingu.
Um helgina hófst alþjóðleg vitundavika meðfæddra hjartagalla og tekur Neistinn, sem er styrktarfélag hjartveikra barna og fullorðinni, þátt í henni með því að efla fræðslu sína. Við fengum til okka Ninnu, Jónínu Sigríði Grímsdóttur, skrifstofusjóra Neistans
Hvað þarf að gera til að komast í þekktustu og lengstu Íslendingasögu allra tíma? Þær Þorgerður og Helga, Njálsdætur velta þessari spurningu fyrir sér þegar orð berst um að verið sé að skrifa Brennu-Njáls sögu. Þetta er það sem leikritið Brennu-Njáls dætur fjallar um. Þær Margré Braga Geirsdóttir og Ýr Aimee Gautadóttur Persburg komu til okkar.