Sagnaland er ný alíslenk hljóðbókaveita sem fór í loftið í gær. Ein af sérstöðum Sagnalands er að nýjar bækur eru aðgengilegar til kaupa til að byrja með en fara ekki strax í áskrift sem skapar þá meiri tekjuleiðir fyrir höfunda. en það er gegnum gangandi hjá Sagnalandi að fara ekki samkeppni við rithöfunda og útgefendur heldur styðja við þá. Þeir eru komu til okkar Friðrik Salvar Bjarnason og Lúðvík Páll Lúðvíksson, stofnendur Sagnalands.
Á meðan augu heimsbyggðarinnar beindust að Íran sendu Rússar háleynilegan hluta flota síns til að stunda njósnir á sæstrengjum norður af Bretlandi. Við ræddum við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing um þessar aðgerðir og hvaða þýðingu þær hafa fyrir Ísland, sem tengist jú umheiminum í gegnum slíka strengi.
Margir hafa hugsað í gegnum tíðina “oh hvað ég væri til í að eiga föt eins og Barbie” og nú er það hægt. Danska fatamerkið Gestuz gaf út á dögunum fatalínuna byggða á Barbie fötum frá níunda áratugnum. Línan fæst í fataversluninni Andrá en þær Steinunn Björg Hrólfsdóttir og Eva Katrín Baldursdóttir komu til okkar, sögðu okkur frá línunni og aðeins frá sumartískunni 2026.
Við kynntum okkur aðeins Skagarokk sem fram fer á Akranesi í kvöld og á morgun. Þessi tónlistarhátíð á sér langa sögu sem Ólafur Páll Gunnarsson fræddi okkur um.
Föstudagsgesturinn að þessu sinni var tónlistakonan Greta Salóme Stefánsdóttir en hún hefur látið lítið fara fyrir sér undanfarin misseri. Hún sagði okkur hvað væri að frétta.
Ríkisstjórnin kynnti í morgun tímabundnar efnahagsaðgerðir sem að sögn forsætisráðherra er ætlað að vera mótvægi við óvissu og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Þá verður efnt til þríhliða samtals Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og stjórnvalda um að hemja verðbólgu. En hvernig lýst ASÍ á tillögurnar. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, var á línunni.
New York Times birti grein í vikunni um þá samfélagslegupressu sem karlar samtímans mæta að þeir megi nánast ekki missa hárið. Sumir fara í hárígræðslu en aðrir taka lyf til að sporna við hármissinum. Þessi lyf geta þó haft dýrkeyptar aukaverkanir. Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður lyfjafræðingafélags Íslands kom til okkar.