Síðdegisútvarpið

Þjóðaratkvæðagreiðsla framundan, Una Stef og gervigreindin og auglýsingabransinn.

Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra í fyrramálið. Spáð er suðlægum áttum og vindhraða á bilinu 18 til 28 metrum á sekúndu, með hviðum 40 metrum. Við hringdum norður á Strandir og heyrðum í Jóni Guðbirni Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu Ávík í Árneshreppi hvar einna versta veðrinu er spáð

Þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt verður hvort þjóðin vilji áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Þetta tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Við opnuðum símann og heyrðum hvað hlustendur höfðu segja um þetta mál.

Tónlistarkonan Una Stef setti inn áhugaverða færslu á FB í gær en þar segir hún frá því erlent fyrirtæki búið hafa ítrekað samband við hana til þess hana til þess vinna fyrir sig. Gott og vel. Vinnan felst í því hún á taka upp hundruði klukkutíma af henni sjálfri tala íslensku og sömuleiðis á hún syngja enn fleiri klukkutíma af efni á íslensku. Fyrir þetta átti Una fúlgur fjár en þar stendur hnífurinn í kúnni ? Una kom til okkar og sagði okkur frá þessu ævintýralega tilboði og hvað hafi næst gerst í kjölfarið.

Í dag er Imark dagurinn haldinn hátíðlegur og starfsfólk í auglýsingageiranum gerir sér glaðan dag og fræðist um ýmislegt tengt geiranum og svo er blásið í lúðra í kvöld en þá eru bestu auglýsingarnar verðlaunaðar úr öllum miðlum. Við veltum því fyrir okkur í dag hvernig auglýsingabransinn lítur út, hvað hefur breyst og hvernig framtíðin lítur út og Einar Logi Vignisson framkvæmdastjóri Ruv sölu kom til okkar og ræddi þessi mál

Það er vitanlega fjölmargt í gangi um helgina í menningarlífinu og við hnutum um eina tónleika sem fram fara í Langholtskirkju á morgun þar sem barna- og unglingakórar flytja lög og texta eftir Magnús Eiríksson heitinn. Við heyrðum í kórstjóranum Sunnu Karen Einarsdóttur sem hefur undanförnu kynnt tónlist Magnúsar fyrir börnunum og spurðum hana einnig um áhuga fólks á kórastarfi.

Loks hleruðum við hver dagskráin verður í sjónvarpinu í kvöld, Vikan með Berglindi Festival verður á sínum stað en Berglind leysti félaga sinn, hann Gísla Martein af í síðustu viku með sóma og ætlar endurtaka leikinn í kvöld. Við trufluðum Berglindi í lok þáttar.

Birt

6. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,