Síðdegisútvarpið

Fiskikrókar verða að eyrnalokkum, Jóhann Hlíðar frá Spáni og lífið í Hafnarfirði

Undanfarið hafa komið upp alvarleg mál þar sem gæludýr hafa orðið fyrir frostlögseitrun eftir hafa étið mat sem þau fundu utandyra í sumarbústaðahverfinu Hvammi eða Hvammsvík í Kjós. Grunur leikur á um ásetningsverk geti verið ræða. Við ræddum þetta sorglega ál við Helgu Hjartardóttur, dýralækni hjá Animalíu

Oddvitar flokkanna sem bjóða fram í Hafnarfirði mætast í sjónvarpinu á Rúv í kvöld. Í tilefni af því skellum við okkur í Hafnarfjörð. Við byrjuðum niðrá höfn þar sem við ræddum við Inga Rafn Ragnarsson hafnsögumann. Því næst skellum við okkur á kaffibarinn Barböru þar sem við hittum rekstrarstjórann Ólöfu Birnu Bjarnadóttur og svo lukum við heimsókninni í Firðinum þar sem við tókum nokkra Hafnfirðinga tali.

Annan hvern þriðjudag heyrum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni á Spáni en í Spánarspjallinu sagði hann okkur okkur af bókaútgáfu á Spáni, 14 ára gagnfræðingi sem fær ekki fara til Bandaríkjanna á Allsherjarþing í New York og þá sagði hann okkur litla sögu frá Úganda en þar hefur geisað borgarstríð í 30 ár.

Sumardagurinn fyrsti í ár verður tileinkaður náttúru Íslands hjá Landvernd. Þá á ganga fyrir náttúruna og framtíðina og í framhaldi af því verður pallborð í norræna húsinu með oddvitum stjórnmálaflokka í sveitarstjórnarkosningum. Til þess segja okkur meira kom til okkar Ragnhildur Katla Jónsdóttir upplýsingafulltrúi Landverndar.

Stígur Helgason kíkti til okkar. Hann heldur utan um kosningaumfjöllunina hér á Rúv, sem fer af stað í kvöld. Við fengum hann til segja okkur hvernig fyrirkomulagið á henni verður næstu vikurnar.

Sjávardjásn er nýsköpunarverkefni sem byggir á sjálfbærni og skapandi endurnýtingu. Frumkvöðlahópur í Menntaskólanum við Sund fékk hugmyndina þegar þau fóru velta fyrir sér hvað verður um fiskikróka eftir þeir hætta nýtast í veiðum. Í stað þess enda sem úrgangur nýtum þau þá á nýjan og verðmætan hátt með því umbreyta þeim í handgerða, einstaka eyrnalokka. Þær Kamilla Mía Briem og Halldóra Mjöll Snorradóttir komu til okkar og sögðu frá.

Birt

14. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,