Síðdegisútvarpið

Bryndísarhlíð nýtt húsnæði fundið, fréttir frá Alþingi og tillögur um sjónvarpsefni til að horfa á.

Við byrjuðum þáttinn á því heyra hvað væri efst á baugi í umræðum á Alþingi Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttaritari kom til okkar.

Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn hátíðlegur víða um land. Markmið dagsins er minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum muna þetta lífsnauðsynlega númer. Þema 112 dagsins er 30 ára afmæli Neyðarlínunnar. Hjalti Sigurðsson er verkefnastjóri 1-1-2 dagsins. Hann kom í Síðdegisútvarpið.

Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsþáttaframleiðandi hér á RÚV, er mikill áhugamaður um sjónvarp. Hann ætlar framvegis kíkja til okkar á þriðjudögum og benda okkur og hlustendum á einhverja sjónvarpsþætti sem við erum hugsanlega missa af. Fjölmargir eru alltaf leit góðum sjónvarpsþáttum til horfa en finna aldrei neitt.

Bílaframleiðsla í heiminum er á miklum umbrotatímum. Í áratugi hafa risar á borð við Toyota og Volkswagen verið í forystu, bæði þegar kemur magni og tækniþróun. En landslagið er breytast hratt. Rafbílavæðingin er kollvarpa leiknum, nýir aðilar ryðja sér til rúms og Kína hefur á skömmum tíma orðið stórveldi í bílaframleiðslu. En hverjir eru raunverulega í forystu í dag og hvað þýða þessar breytingar fyrir framtíð bílsins? Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins kom til okkar.

Í dag var sagt frá því ákvörðun hefði verið tekin um opnun sérhæfðar

ofbeldismóttöku innan Landspítala sem mun bera heitið Bryndísarhlíð en

minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl. Húsið er fundið og það

hlýtur teljast mikið fagnaðarefni. Þær Nanna Briem, framkvæmdastjóri geðþjónustu fullorðinna á Landspítala, Dögg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri kvenna- og barnaþjónustu Landspítala og Guðrún Inga Sívertsen, formaður stjórnar Minningarsjóðs Bryndísar Klöru komu til okkar.

Í kvöld fer fram leikur Fjölnis og SR í íshokkí karla. Leikurinn var færður í Skautahöllina í Laugardal til getað minnst leikmanns SR sem lést í bílslysi í

síðustu viku. Allur aðgangseyrir mun renna til fjölskyldu leikmannsins unga,

Patreks Frey Sveinssonar. Bjarni Helgason, varaformaður Skautafélags Reykjavíkur, var á línunni.

Í kvöld verður fyrsti þáttur Torgsins á þessu ári á dagskrá. Þátturinn er umræðuþáttur íbeinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. En hvað á ræða um í kvöld? Þau Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson, stjórnendur Torgsins, komu til okkar.

Birt

10. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,