Umræða um samgöngur til og frá Seyðisfirði er áfram í brennidepli – og í nýrri grein á Vísi fjallar Eyjólfur Þorkelsson, framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Austurlands, um stöðuna og þær áskoranir sem skapast þegar samgöngur eru ótryggar. Hann bendir á að þetta snúist ekki aðeins um vegi heldur líka öryggi, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og daglegt líf íbúa á svæðinu. Við ræddum þetta nánar við Hildi Þórisdóttur, sveitarstjórnarfulltrúa í Múlaþingi og íbúa á Seyðisfirði.
Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Ormsson hf., skrifar grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann bendir á að umræðan um íslenska hagkerfið sé á villigötum þegar hún snúist að mestu um verð og vexti. En ætti að snúast um hreyfingu á vörum og þjónustu. Þegar hún hægir á sér hægir á öllu. Hann merkir að hagkerfið sé að hægja á sér. Kjartan Örn kom í Síðdegisútvarpið.
Stóra Páskaeggjamálið á Landspítalanum hefur vakið mikla athygli eftir að ákveðið var að starfsfólk fengi engin egg í ár vegna niðurskurðar – á meðan ráðuneytið og ráðherrar fá sitt. Nú hefur málið tekið óvænta stefnu í sælgætisfyrirtækin Góa og Omnom hafa boðist til að framleiða þúsundir páskaeggja fyrir starfsfólkið. Við heyrðumí Ragnari Frey Ingvarssyni, jafnan þekktur sem læknirinn í eldhúsinu en hann tjáði sig einmitt um þetta mál hjá okkur í vikunni.
Áhrif samfélagsmiðla á heilsu menntaskólabarna verður til umfjöllunar í dag en nýlega féll dómur í New Mexico í Bandaríkjunum þar sem Meta þarf að borga 375 milljónir dollara vegna skaðsemi samfélagsmiðla. Ragga Nagli er stödd á landinu en hún var einmitt með fyrirlestur um þessi mál í Menntaskólanum við Sund á dögunum og hún kom til okkar.
Erum við sem þjóðfélag að leggja gamla fólkinu og taka af því hlutverk? Fólk lifir lengur, er almennt hraustara og leggur meiri áherslu á heilsueflingu. Mörg stunda reglulega hreyfingu, taka þátt í félagslífi og hafa bæði vilja og getu til að halda áfram virkri þátttöku í samfélaginu langt fram eftir aldri. Þessi þróun kallar á nýja sýn á öldrun. Þetta segir Rannveig Tenchi Ernudóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur og kynslóðablandari eins og hún kallar sig. Við heyrðum í Rannveigu.
Samgöngustofa hefur hrundið af stað átaki eftir að nýjar tölur sýna að ungt fólk, sérstaklega á aldrinum 18–24 ára, er í auknum mæli hætt að nota bílbelti – þrátt fyrir að hættan á banaslysi aukist verulega án þeirra. Ný herferð, Ekki gera þig að fífli, á að ná til þessa hóps með húmor og óhefðbundnum leiðum, meðal annars með þátttöku áhrifavalda. Við fengum til okkar Gunnar Geir Gunnarsson er deildarstjóri öryggis-og fræðsludeildar Samgöngustofu og hann kom til okkar.