Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Af hverju er hagstæðara að kaupa íbúð en hlutabréf ? Í nýrri skýrslu frá húsnæðis og mannvirkjastofnun er leitast við að skýra það og Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur HMS kom til okkar.
Við fórum svo til Hafnarfjarðar - Siggi ræddi við Valdimar Víðisson bæjarstjóra um Heima tónlistarhátíðina, bæjarlistamann Hafnarfjarðar og margt fleira
Veitur leggja til að umferð bíla um Heiðmörk verði takmörkuð- Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna kom til okkar og ræddi þau mál.
Heimsókn á Suðurgötu í Hafnarfirði - Anthony Bacigalupo og Ýr Káradóttir eru ein af þeim sem opna garðinn sinn á hátíðinni.
Viðtal við Albert Eiríksson um sumardaginn fyrsta.
Í lokin var Siggi mættur á Norðurbakkann og ræddi við meðlimi hljómsveitarinnar Celebs þau Valgeir Skorra, Hrafnkel Huga og Kötlu Vigdísi
-