Það er óvenju mikið um að vera á Hólmavík þessa dagana því þar standa yfir tökur á stórri alþjóðlegri kvikmynd. Baskneski leikstjórinn Mikel Aguirresarobe tekur þar upp mynd sem ber vinnuheitið Hólmavík og verður stærstur hluti hennar tekinn upp þar í mars og apríl. Meðal leikara í myndinni er knattspyrnugoðsögnin Eric Cantona, auk bæði erlendra og íslenskra leikara. Viðræddum þetta verkefni við Önnu Björgu Þórarinsdóttur á Galdrasafninu á Hólmavík.
Atvinnumarkaðurinn hefur tekið nokkrum breytingum undanfarið. Atvinnuleysi hefur aukist og víða hefur verið greint frá uppsögnum, sem hefur áhrif bæði á fyrirtæki og starfsfólk. En hvernig lítur staðan raunverulega út, hvaða störf eru í boði og hvaða úrræði standa fólki til boða ef það missir vinnuna? Og hvernig er best að undirbúa sig fyrir atvinnuleit? Thelma Kristín Kvaran, einn eigenda ráðningarfyrirtækisins Intellecta starfar við þessi mál daglega og hún kom til okkar.
Laufey endar Evróputúr sinn A Matter of Time hér á Íslandi með stórtónleikum í Kórnum um næstu helgi 14. og 15. mars nk. Tónleikahaldarinn Ísleifur Þórhallsson kom til okkar og sagði okkur frá undirbúningnum, skipulaginu og því sem bíður tónleikagesta þegar ein stærsta íslenska tónlistarstjarna samtímans stígur á svið.
Lagahöfundabúðir er fyrirbæri sem við í Síðdegisútvarpinu höfum oft heyrt af og leikur forvitni á að vita meira um. Steinunn Camilla hjá Iceland sync veit allt um það og sagði okkur frá hvernig þetta gengur fyrir sig. Eitt þeirra laga sem varð til í slíkum búðum hjá Iceland sync er framlag svía í ár í Eurosvision, lagið My System sem Felicia flytur og er einn höfunda að.
Í gær kom til okkar Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, til að ræða þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um hvort taka eigi upp á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann var því ekki fylgjandi. Í dag heyrðum við í formanni Evrópuhreyfingarinnar sem er á öndverðu meiði. Hann heitir Magnús Árni Skjöld Magnússon.
Annan hvern þriðjudag fáum til okkar Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðanda hér á RÚV, til að mæla með góðu sjónvarpsefni til að horfa á. Hann var hjá okkur í lok þáttar.