
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Ein af vinsælustu stóðréttum landsins er haldin um helgina og eins og Skagfirðirngar segja sjálfir þá er yfirleitt mikið fjör og gleði í Skagafirðinum þessa helgi. Viggó Jónsson tíðindamaður okkar á Króknum verður á línunni til að segja okkur betur frá.
Í dag eru sex ár síðan forsætis-, fjármála- og innviðaráðherra, borgarstjóri og bæjarstjórarnir á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu undir Samgöngusáttmálann. Í tilefni afmælisins ætlar Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri Betri samganga ohf að stikla á stóru varðandi stöðu mála.
Í gær birtist aðsend grein í Morgunblaðinu unir yfirskriftinni “Einhleyp í Reykjavík” Þar rekur Berta Sigríðardóttir fyrirkomulagið á skemmtanahaldi í Reykjavík sem hún segir óspennandi amk. fyrir einhleypa unga konu. Við heyrum í Bertu í þættinum.
Stefán Atli Rúnarsson kemur til okkar á föstudegi og ræðir við okkur um gervigreind, við fáum að vita allt um Meta snjallgleraugun, tónlistarsköpun með AI og minningarathöfn fyrir Claude.
Járngerðar eru hagsmunasamtök Grindavíkur sem stofnuð voru fyrr á þessu ári. Þar er efnt nú til vikulegra upplýsingafunda með hinum ýmsu aðilum sem tengjast Grindavík. Guðbjörg Eyjólfsdóttir er formaður samtakanna og við heyrum í henni.
Lífskraftur hefur hrundið af stað átaki sem miðar að því að útrýma leghálskrabbameini á Íslandi í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands og 66°Norður. Er þetta raunhæft markmið og hvernig miðar átakinu ? Brynhildur Ólafsdóttir og Bára Mjöll Þórðardóttir ræða við okkur í Síðdegisútvarpinu hér á eftir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.