Síðdegisútvarpið 5. febrúar 2026
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fundaði með lögmönnum tímenningana og þremur þeirra sem voru vistaðir í Bakkakoti í hádeginu í dag. Erla María Davíðsdóttir fréttamaður hefur fylgst með fundinum og hún kom til okkar.
Reykjavíkurborg hefur verið sein að grípa til aðgerða í leikskólamálum, að mati stjórnenda leikskóla í borginni. Ásta Kristín Svavarsdóttir er leikskólastjóri Jöklaborgar og Særún Ármannsdóttir leikskólastjóri á Hofi segja álagið óhóflegt og vara við því að sífellt fleiri starfsmenn kunni að láta af störfum haldi staðan áfram óbreytt. Þær Ásta og Særún komu til okkar.
Nú er EM í handbolta lokið og þá er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og jafnvel rýna í framtíðina. Fram hefur komið að HSÍ er ekki mjög stöndugt fjárhagslega. . Í umræðunni hefur verið skorað á fyrirtæki að styrkja sambandið beint en ekki bara að kaupa auglýsingar fyrir leikina og styðja sambandið þannig. Jón Halldórsson er formaður HSÍ hann kom til okkar.
Fjölmennt var á hitafundi í Réttarholtsskóla í gær þar sem flutningur kaffistofu Samhjálpar var til umræðu. Íbúar segjast styðja starfsemina, en vilja að hún verði staðsett annars staðar en á Grensásvegi. Framkvæmdastjóri Samhjálpar segir leit að hentugu húsnæði hafa verið ítarleg, bæði hjá borg og ríki, og varar við því að málið geti orðið að pólitísku bitbeini þegar kosningar nálgast. Finnur Björgvinsson er íbúi í hverfinu og hann var á fundinum og hann var á línunni.
UTmessan fer fram á morgun og á laugardaginn. Þar má skoða og prófa það nýjasta sem er gerast í tölvu- og tækniheiminum. Arnheiður Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri UT Messunnar. Við heyrðum í henni .
Við getum líklega öll verið sammála því að fyrir flesta hefur stafvæðingin verið til mikilla bóta það er t.a.m. orðið einfaldara að sinna bankamálum í símanum eða borga í verslununum eða í strætó með appi. En fyrir suma viðkvæma hópa getur þessi þróun haft þveröfug áhrif og jafnvel leitt til skertrar þjónustu og verri lífsgæða. Sigurjón Ólafsson rekur ráðgjafarfyrirtækið Fúnksjón, sem sérhæfir sig í stafrænum málum, og hann flytur erindi á UTmessunni sem ber heitið: Hvað höfum við gert 85 ára gamalli konu í stafvæðingunni? Hann kom til okkar í dag.