Síðdegisútvarpið

Íslendingur í Barein, heyrnin, offita og leikfélag Hörgdæla

Appelsínugul viðvörun tók gildi á Austurlandi Glettingi og Austfjörðum klukkan 13:00 í dag. Þar er spáð norðvestan 20 til 28 metrum á sekúndu, snjókomu með köflum og skafrenningi. Ekkert ferðaveður verður á þessum stöðum og gular viðvaranir verða í gildi á nær öllum austurhelmingi landsins og hálendinu fram á kvöld. Við slógum á þráðinn austur og heyrðum í Kristjönu Björnsdóttur á Borgarfirði eystra.

Átökin í Miðausturlöndum sem hófust á laugardag hafa breiðst enn frekar út. Það eru íslendingar sem eru búsettir á þessum slóðum og einn þeirra er Eyjólfur Darri Runólfsson sem býr og starfar í Barein. Við hringdum í hann og fengum heyra hver staðan er hjá þeim nákvæmlega núna.

SFO-Samtök fólks með offitu á Íslandi eru með viðburð á miðvikudaginn í tilefni af Alþjóðadegi offitu sem er einmitt þann dag. Markmið samtakanna er auka fræðslu, skilning og samtal um offitu og er viðburðurinn hluti af því. Þær Sólveig Sigurðardóttir og Guðlaug Margrét Ingvadóttir komu til okkar.

Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur kom til okkar með verðurspá næstu daga en það spáir vetraveðri víða og um gera fylgjast vel með.

Alþjóða heilbrigðisstofnunin og Heyrnar og talmeinastöð Íslands fagna Degi heyrnar á morgun en þetta er árlegur viðburður. Í ár eru skilaboðin mjög mikilvæg fyrir okkur Íslendinga en þema Dags Heyrnar er heyrnarvernd fyrir öll börn. Kristján Sverrisson, forstjóri Heyrnar og talmeinastöð Íslands, kom til okkar.

Leikfélag Hörgdæla frumsýna á fimmtudag verkið Átta konur eftir franska leikskáldið Robert Thomas. Sævar Sigurgeirsson þýddi og aðlagaði verkið á sínum tíma fyrir Þjóðleikhúsið og þar var það sýnt 2006. Við heyrðum í leikstjóranum Kolbrúnu Lilju Guðnadóttur.

Birt

2. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,