Grindvíkingar eru tilbúnir að leggja MIKIÐ á sig til að halda samfélaginu sínu lifandi segir Kristín María Birgisdóttir, fyrirtækjaeigandi í Grindavík, í grein sem hún birtir á Vísi. Og segir það stinga sárt að á sama tíma og fagnað sé seiglu, samstöðu og endurreisn í gegnum íþróttirnar, en Grindvíkingar urðu íslandsmeistarar í körfubolta í vikunni, skuli fólk enn mæta lokuðum dyrum þegar kemur að því að fá að vera í eigin bæ. Kristín María var á línunni.
Nýleg könnun embættis landlæknis sýnir að börn og ungmenni eiga í mörgum tilfellum mjög auðvelt með að kaupa áfengi á netinu. Gagnrýnendur segja netsöluna vera orðna eins konar opinn krana inn á heimili landsmanna – án þess eftirlits sem gildir í hefðbundinni áfengissölu. Við ræddum þetta mál nánar við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttir sviðstjóra lýðheilsu hjá embætti landlæknis.
Trompetleikarinn Tumi Torfason kemur fram í Iðnó á sunnudagskvöldið á heldur óvenjulegum tónleikum— þar sem þjóðþekkt stef úr útvarpi og sjónvarpi fá nýtt líf í lifandi flutningi. Þetta eru lagabútarnir sem flestir Íslendingar þekkja um leið og þeir heyrast; stef úr Silfrinu, Landanum og fleiri þáttum sem hafa fylgt okkur árum saman. Tumi kom til okkar ásamt Hauki Gröndal saxófónleikara — og þeir gáfu okkur smá sýnishorn.
Nú logar allt stafna á milli í bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði eftir að Sjálfstæðismenn slitu viðræðum við Framsóknarmenn og tala um trúnaðarbrest því oddviti Framsóknar hafi bæði verið í meirihlutaviðræðum við þá og Samfylkingu á sama tíma. Sama segir oddviti Samfylkingarinnar. Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar og fráfarandi bæjarstjóri, kom til okkar og ræddi stöðuna sem upp er komin.
Hvernig tryggjum við öryggi og gæði í kerfi sem þúsundir landsmanna treysta á á hverjum degi — og hvað gerist þegar eitthvað fer úrskeiðis? Þessum spurningum og fleiri er varpað upp á sérstökum öryggis- og gæðadegi hjá Sjúkratryggingum Íslands í dag. Til að segja okkur betur frá hvernig unnið er að því að draga úr áhættu, efla öryggismeningu og bæta þjónustu komumþær Katrín Loftsdóttir, áhættustjóri og Halla Halldórsdóttir, öryggis- og gæðastjóri Sjúkratrygginga Íslands.
Stórmeistaramótið í rafíþróttum hefur verið í gangi í maí mánuði og mun Rafíþróttasamband Íslands krýna á föstudaginn Rafíþróttamann ársins 2026. Við forvitnuðumst um rafíþróttir og fengum til okkar Jökul Jóhannsson, framkvæmdarstjóra Rafíþróttasambandsins.