Veðrið hefur sett allt á hliðina í gær og í dag í samgöngum og fjölda flugferða verið aflýst. Þegar svona ástand skapast vakna spurningar um rétt farþega – hvað á fólk rétt á þegar flug fellur niður eða seinkar verulega? Við heyrðum í Unu Magneu Stefánsdóttur lögfræðingi Neytendasamtakanna.
Niðurstöður rannsóknarborana á Gálmaströnd í Steingrímsfirði hafa gefið góð fyrirheit, jafnvel um að hitastig jarðhitavatnsins sé á bilinu 100-110°C og að kerfið sé vatnsmikið og gjöfult. Þetta skrifar Jóhann Páll Jóhannson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á facebook síðu sína í gær. Við ræddum við Elías Jónatansson, orkubússtjóra Orkubús Vestfjarða, um þessi fyrirheit og 160 millljón króna styrk í varmadælur fyrir Ísafjörð.
Ný úrgangstölfræði Umhverfisstofnunar hefur verið birt og þar kennir ýmissa grasa. Árangur í söfnun matarúrgangs er verulegur og blandaður heimilisúrgangur hefur dregist saman, auk þess sem urðun hefur minnkað töluvert. Samt sem áður er enn of mikið af óflokkuðum úrgangi og ljóst að betur má gera. Pétur Gunnarsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun kom til okkar fór yfir stöðuna og hvað þessi þróun þýðir fyrir okkur öll.
Föstudagsgesturinn okkar var Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets í nokkra daga í viðbót en þar hefur hún starfað í 10 ár og segir sjálf að þau ár hafi m.a. einkennst af hraða, neyðar- og óvissustigum, adrenalíni, snjó, seltu, hlaðvörpum, eldgosum, truflunum og fréttum,
Doktor Dalrún Kaldakvísl, dýrasagnfræðingur, leitar nú að viðmælendum vegna sagnfræðirannsóknar sinnar á háhyrningum við Ísland. Einnig vinnur hún að heimildarmynd um samband Íslendinga og háhyrninga í sögu þjóðarinnar. Dalrún Kaldakvísl kemur til okkar.
Leikfélagið Verðandi í FG sýnir um þessar mundir söngleikinn Ljóska í gegn sem er byggður á kvikmyndinni Legally blonde frá árinu 2001 með Reese Witherspoon í aðalhlutverki. Skólinn státar að leiklistarbraut og mikið líf er í kringum það. Þá söfnuðust rúmar 800 þúsund krónur á góðgerðarsýningu sem renna til Kvennaathvarfsins. Þær Petrún Anna Pálsdóttir, formaður leikfélagsins og Þórdís Björt Andradóttir, markaðstjóri þess komu til okkar.