Síðdegisútvarpið

Kosningar í Svíþjóð, Dagur náttúrunnar, Friðgeirskur húmor og Glatkistan.

Í dag er Dagur íslenskrar náttúru en Landvernd og fleiri samtök standa boði sem fram fer í Tónabíó á eftir klukkan fimm. Þar á fagna náttúrunni og umhverfisvænni framtíð. Í tilefni dagsins fáum við til okkar Tómas Knútsson sem hefur verið ötull náttúruverndarsinni og duglegur tína upp rusl í höfnum og á ströndum landsins. Þessa dagana er hann á Landeyjarsandi tína upp rusl og ætlar vera þar næstu sex daga. En það er reyndar frí í dag, vegna veðurs og boðsins í Tónabíói. Tómas kom til okkar.

Sýningin Nýtt eldhús eftir máli verður frumsýnd á næstu dögum í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Þar fara með aðalhlutverkin þau Ilmur Kristjánsdóttir og Hilmar Guðjónsson undir leikstjórn Björns Thors. Verkið er eftir Friðgeir Einarsson sem komið hefur víða við í leikhúslífi landans og er t.a.m. einn stofnmeðlima leikhópsins Kriðpleirs sem hefur fært okkur frábær útvarpsleikrit hér á Rás 1. Sýn Friðgeirs Einarssonar á hversdagsleikann er í senn næm, nöpur og fyndin en í þessu nýja verki segir frá því þegar Daníel missir vinnuna virðist athygli hans öll smám saman beinast eldhúsinnréttingunni á heimilinu.;Möguleikarnir á úrbótum eru svo margir og heillandi en Daníel veitist erfitt vekja ástríðu konu sinnar, Soffíu, gagnvart verkefninu. Friðgeir sagði okkur frá þessa nýja verki.

Gríðarlega mjótt var á munum í þingkosningunum í Svíðþjóð um liðna helgi. Svo mjótt það er ekki fyrr en í dag sem úrslit liggja fyrir. taka við stjórnarmyndunarviðræður og gæti tekið nokkurn tíma skýrast hver verður næsti forsætisráðherra Svíþjóðar. Urður Örlygsdóttir fréttamaður er í Svíþjóð og fór yfir niðurstöðuna með okkur.

Líkt og rætt hefur verið í ýmsum miðlum þá hafa öll upphitunaratriði á tónleikaferð Ed Sheeran um Bandaríkin hætt þátttöku eftir rapparinn Macklemore var tekinn af dagskrá vegna stuðnings síns við Palestínu og gagnrýni á hernað Ísraels á Gaza. Sömuleiðis hefur Írska þjóðlagahljómsveitin Beoga, sem hefur leikið með Sheeran á sviðinu á öllum tónleikum tónleikaferðarinnar, hætt þátttöku. Macklemore var sakaður um gyðingahatur um leið og hann lýsti yfir stuðningi við Palestínu á tónleikunum þó svo hann vildi meina gagnrýni sín á Ísralesstjórn væri ekki gagnrýni á gyðinga almennt. Þetta eru vissulega stórar tilfinningar og Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur hefur rýnt í þessi mál og ræddi við okkur í þættinum

Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð skrifar Birna G. Magnadóttir í aðsendri grein á Vísi. Birna sem er samskiptastjóri Fjarskiptastofu og áhugamanneskja um stafrænt öryggi er í greininni benda okkur á stillingar sem eru í símum flestra okkar sem geta skipt sköpum þegar neyðarástand kemur upp. Hún vill við gefum okkur fimm mínútur til stilla símana rétt. Birna fór yfir þetta með okkur í þættinum.

Vefsíðan Glatkistan hefur geyma ógrynni upplýsingum og heimildum um íslenska tónlist og tónlistarfólk. Glatkistan er einkaframtak, hugarfóstur Helga Jónssonar sem hefur í fjölmörg ár skráð allt milli himins og jarðar sem stendur íslensku tónlistarlífi nær og er því um mikilvæga menningarsögulega varðveislu ræða. Framtíð Glatkistunnar er hins vegar óljós, óskað var eftir aðkomu stjórnvalda með einhverjum hætti svo styðja mætti við verkefnið og halda starfseminni gangandi en úr því hefur ekki orðið. Helgi Jónsson frá Glatkistunni sagði okkur allt af létta.

Birt

16. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,