Síðdegisútvarpið

Blessað lambakjötið, áhrif verkfalla á ferðaþjónustuna og leikskólamálin að lagast í borginni

Boðað verkfall hjá flugvirkjum hefur enn á vakið umræðu um áhrif vinnustöðvana á ferðaþjónustuna. Í grein á Vísi í dag veltir Friðrik Árnason, eigandi Hótel Breiðdalsvíkur, því upp hver beri kostnaðinn þegar röskun verður á flugsamgöngum og fyrirtæki um allt land verða fyrir tekjutapi þótt þau eigi enga aðild deilunni. Friðrik var á línunni í upphafi þáttar.

Áform um nýjan Tækniskóla í Hafnarfirði eru úr sögunni. Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn greindu frá því í gær ekki hefði tekist afhenda þá lóð sem fyrirhugað var byggja skólann á og því yrði leitað annarri staðsetningu fyrir verkefnið. Við ræddum stöðuna og næstu skref við Egil Jónsson, stjórnarformann Tækniskólans.

Annan hvern þriðjudag fáum við Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðanda, til okkar til benda okkur á gott sjónvarpsefni sem við værum annars hugsanlega missa af. Emmy verðlaunin voru veitt í nótt þar sem meðal annars met var slegið. Ragnar fór yfir það með okkur og benti okkur á nýja streymisveitu sem er aðgengileg á Íslandi.

Leikskólamálin hafa lengi verið stórt viðfangsefni hjá Reykjavíkurborg, ekki síst þegar kemur mönnun og því tryggja börnum leikskólapláss. virðist staðan þó vera betri en hún hefur verið undanfarin tvö haust. Hvað skýrir þessa jákvæðu þróun, hvaða áskoranir eru enn til staðar og hvað þýðir þetta fyrir börn og foreldra? Um það ræddum við við Sigrúnu Ástu Einarsdóttur, formann leikskóla- og daggæsluráðs Reykjavíkurborgar. Við spurðum hana líka út í auglýsingu sem birtist á vef borgarinnar í byrjun september en þar er auglýst eftir áhugasömum fyrirtækjum til hefja rekstur leikskóa?

Íslenskt lambakjöt sem fer með kynningar- og ímyndarmál fyrir íslenska sauðfjárrækt lét gera fyrir sig könnun á dögunum. Þar kemur í ljós neytendur telja kílóverð lambalæris vera mun hærra en ýsuflaks sem er roð og beinlaust. Af öllum svarendum töldu 65% lambalærið kostaði meira en ýsuflakið. Svo mun þó ekki vera. Eða hvað? Við skoðum þessa könnun með Hafliða Halldórssyni sem er framkvæmdarstjóri Íslensks lambakjöts.

Lífræni dagurinn var haldinn í Kringlunni á laugardaginn en metfjöldi ræktenda og framleiðenda tekur þátt í ár. Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri Lífræns Íslands sem stendur deginum, hún ræddi við okkur um lífræna ræktun og lífræna daginn.

Birt

15. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,