Í dag eru fjögur ár frá því að Rússlandi réðist inn í Úkraínu og ekki er friður enn í augsýn þó einhverjar viðræður séu í gangi. En hvernig spjarar fólk frá Úkraínu sig á Íslandi? Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir, hefur verið flóttafólki frá Úkraínu innan handar hér á landi síðustu fjögur ár. Hann var á línunni.
Nú eru vetrarólympíuleikarnir að baki og óhætt að segja að þeir hafi vakið mikla athygli landsmanna. Umfjöllunin hér hjá okkur á RÚV var umfangsmikil og við höfum þegar rætt ýmsar greinar, ekki síst skíðaíþróttirnar. En nú beinum við sjónum að skautunum. Hver er staðan í skautaíþróttum á Íslandi í dag? Hvað gengur vel – og hvar liggja tækifærin til úrbóta? Helgi Páll Þórisson, formaður Íshokkísambands Íslands, kom til okkar og fór yfir málin.
Hin árlega matarhátíð Food & Fun byrjar á morgun og stendur til 1. mars. Fjöldi veitingastaða bjóða þá upp á gestakokka sem koma oftar en ekki frá fínum veitingastöðum erlendis frá og jafnvel frá Michelin-stöðum. Ólafur Árni Hall, framkvæmdarstjóri hátíðarinnar sagði okkur allt um hátíðina, sögu hennar og hvað boðið er uppá í ár.
Koddahjal með Evu Ružu hefur göngu sína á morgun í opinni dagskrá á Sjónvarp Símans rásinni. Í þættinum fær Eva Ruza til sín góða gesti í beina útsendingu til að kryfja allt það helsta í heimi raunveruleikasjónvarps. Þar verður farið yfir allt það helsta í líðandi mánuði í heimi raunveruleikasjónvarpsins. Eva Ruza kom til okkar og sagði okkur nánar frá hugmyndinni.
Gróðureldarnir við Elliðavatn um helgina hefðu getað ógnað vatnsbólum höfuðborgarsvæðisins ef vindáttin hefði verið önnur. Forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum sagði í Morgunútvarpinu í gær að herða þurfi forvarnir og jafnvel takmarka umferð um Heiðmörk. Drykkjarvatn Reykvíkinga er í dag tekið úr Gvendarbrunnum og við Myllulæk, vatnsbólum sem byggja á yfirborðsvatni og eru því viðkvæm fyrir náttúruvá og mengun. Skógræktarfélag Reykjavíkur lét ISOR gera úttekt á öryggi vatnstökunnar og þar eru settar fram hugmyndir um að færa hana ofar og sækja vatnið á meira dýpi, til dæmis í Vatnsendakrika. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, kom til okkar.
Kristín Hermannsdóttir, fagstjóri veðurþjónustu hjá Veðurstofunni, leit við og fór yfir hvað gular viðvaranir fyrir austurland þýða og fór líka yfir spánna fyrir næstu daga.
Hvað eigum við að horfa á í sjónvarpinu? Af hverju erum við að missa? Sjónvarpsframleiðandinn Ragnar Eyþórsson heldur áfram að benda okkar á gott sjónvarpsefni.