Síðdegisútvarpið

Þjófnaður úr verslun í Freysnesi, ruslvæðing á netinu og bækurnar sem við hendum

Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa um söluskála á Freysnesi í Öræfum í gærmorgun. Um tíu manns á húsbílum gengu hring eftir hring um verslunina, stungu vörum í vasana og náðist það allt á eftirlitsmyndavélar. Við hringdum austur í Freysnes og heyrum í eiganda Hótels Skaftafells og söluskálans Freysness í Önnu Maríu Ragnarsdóttur.

Skíðavikan á Ísafirði hefur verið haldin nær sleitulaust frá árinu 1935, þegar Skíðafélag Ísfirðinga bauð landsmönnum öllum vestur á Ísafjörð til „anda sjer hinu dásamlega háfjallalofti Vesturlands, og bruna á fleygiferð niður hinar glæsilegu skíðabrekkur sem þar eru“ eins og segir í frétt Morgunblaðsins um hátíðina sem birtist í blaðinu þann 2. apríl 1935. Og sjálfsögðu fer Skíðavikan fram fyrir vestan um þessa páska. Helga Þórdís Björnsdóttir sagði okkur hvað er í boði.

Mikið magn bóka endar í ruslinu á hverju ári hér á landi en umræða um þessi mál kviknaði enn á um helgina þegar Hallgrímur Helgason rithöfundur birti myndir á FB af bókum meðal annars bókum Halldórs Laxness og Þórbergs Þórðarsonar í gámi hjá Sorpu. En er það virkilega svo við verðum henda bókum sem enginn hefur not fyrir? Gunnar Dofri Ólafsson frá Sorpu kom til okkar í dag

Í síðustu viku var skýrsla frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa birt en þar er varpað ljósi á alvarlegt banaslys sem varð í Borgarfirði á síðasta ári með þeim afleiðingum lítið barn lést. Þar kemur meðal annars fram barnabílstóll hafi brotnað við höggið, þrátt fyrir uppfylla alla staðla. Það vekur upp mikilvægar spurningar um öryggi barnabílstóla og hvort kröfurnar sem gerðar eru í dag séu nægilega strangar. Hversu öruggir eru bílstólar í raun og geta foreldrar treyst þeim? Herdís Björk Brynjarsdóttir teymisstjóri hjá HMS kom til okkar á eftir.

Áhugi á tölvuleikjagerð fer vaxandi í heimi skapandi greina en hvað liggur raunverulega baki ferlinu? Í næstu viku verður haldinn viðburður þar sem farið er ofan í skapandi ferli tölvuleikja og hvernig hugmyndir verða leikjum. Steinunn Hauksdóttir frá Rannsóknarsetri skapandi greina var á línunni.

Hvað er ruslmenning á netinu? Árni Matthíasson, sérfræðingur á fréttastofu RÚV fór yfir það með okkur.

Birt

30. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,