Síðdegisútvarpið

Kurt Cobain, Bjössi Thor og Anna Lea fyrsti kvenformaður félags íslenskra bókaútgefanda í yfir 100 ár.

Rannsókn heldur áfram í dag á fyrrum heimili Andrews Mountbatten-Windsor, sem var sleppt síðdegis í gær eftir handtöku vegna gruns um hafa deilt viðkvæmum upplýsingum með Jeffrey Epstein sem viðskiptaerindreki Bretlands. Bresku götublöðin slá öll upp á forsíðu handtöku Andrew og var hann ekki upplitsdjarfur á mynd sem náðist af honum á leið frá lögreglustöðinni þar sem hann var í haldi. En hvernig er orðið á götunni, hún Sigrún Sævarsdóttir Griffiths býr í Lundúnum og við heyrðum í henni.

Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í vikunni var samþykkt öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. Við slóum á þráðinn til Elliða Vignissonar bæjarstjóra.

Anna Lea Friðriksdóttir var kjörin formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, fyrst kvenna í 137 ára sögu félagsins. Hún segir mikilvægt halda umræðunni um bókalestur á jákvæðum nótum og þannig megi koma bókum aftur í tísku. Anna Lea kom til okkar, og sagði okkur af sínum verkefnum sem fram undan eru stöðu bókarinnar.

Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það er hann yfirleitt kallaður, hefur verið hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikum heims. Hann var föstudagsgestur Síðdegisútvarpsins í dag.

Tónlistarmaðurinn Kurt Cobain forsprakki Nirvana hefði fagnað 59 ára afmæli sínu í dag en hann fæddist 20. febrúar 1967 og lést 5. apríl 1994. Það ár bárust þessi válegu tíðindi tónlistarheiminum Cobain hafi fundist á heimili sínu í Seattle og dánarorsökin sjálfsvíg, hann hafi skotið sig með byssu. En í allan þennan tíma hafi verið háværar raddir uppi um ekki hafi verið um sjálfsvíg ræða, heldur morð og nýlegar rannsóknir sérfræðinga varpa ljósi á ekki hafi allt verið með felldu á þeim stað sem Cobain fannst á sínum tíma. Franz Gunnarsson tónlistarmaður þekkir talsvert til sögu Cobain og hann kom til okkar og ræddi þessar nýju kenningar.

Vikan með Gísla Marteini verður á sínum stað í kvöld í sjónvarpinu, og þegar kemur gestum Gísla þá er alltaf sama fólkið ... eða hvað. Gísli kom til okkar.

Birt

20. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,