Síðdegisútvarpið

Snjóbylur á austurstönd Bandaríkjanna, Blikastaðalandið og framandi ferðalög

Snjóbylur sem gengur yfir norðausturhluta Bandaríkjanna hefur valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi. Jafnfallinn snjór er allt 60 cm og veðurviðvörun sem gefin hefur verið út nær til nærri 40 milljón manna. Við hringdum til New York og heyrðum í Erlu Skúladóttur kvikmyndargerðarkonu sem þar býr og hefur búið lengi.

Fyrsti áfangi nýs íbúðahverfis í Mosfellsbæ er núna í skiplagsgátt hjá bæjarfélaginu. Um er ræða tæplega 35 hektara hluta af Blikastaðalandi. Valdimar Birgisson, formaður skipulagsnefndar Mosfellsbæjar kom til okkar og sagði okkur betur frá.

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum sendu borgarfulltrúum bréf þegar ákvörðun hafði verið tekin leyfa áfengissölu á íþróttaviðburðum gegn ströngum skilyrðum þar sem þau harma þessa ákvörðun. Árni Guðmundsson er formaður samtakanna hann og hann kom til okkar.

Neytendasamtökin kynntu fyrir helgi samantekt og tillögur samtakanna um aðgerðir á tryggingamarkaði sem þau létu taka út. Tryggingar séu meðal stærri útgjaldaliða íslenskra heimila og til mikils er vinna hægt lækka þann kostnað segja samtökin. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kom til okkar.

Atvinnufjelagið, sem er félag smærri fyrirtækja, er í fundarferð um landið í tilefni af sveitarstjórnarkosningum í maí. Félagið vill ræða við fulltrúa stjórnmálaflokka víða um land um framtíð atvinnulífsins á þeirra svæðum. Sigmar Vilhjálmsson kom og sagði okkur tilgang Atvinnufjelagsins og sagði okkur meira af fundarferðinni.

Um daginn fengum við til okkar Sigurð Kolbeinsson hjá Kolumbus ævintýraferðum og fengum í kjölfarið mikinn áhuga á slíkum ævintýraferðum. Ferðir sem eru öðruvísi en hinar hefðbundnum sólarlandaferðir. Í dag kom til okkar Rebekka Þurý Pétursdóttir hjá Kilroy. Hún sagði okkur frá slíkum ferðum og hvernig ferðir Íslendingar velja hjá þeim.

Birt

23. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,