Síðdegisútvarpið

Kosningar framundan í Danmörku, Sólarpönkuhátíð og Óskarsverðlaunin

Við byrjuðum á því Markús Þórhallsson fréttamaður kom til okkar og ræddi stjórnmálin í Grænlandi en Jafnaðarmannaflokkurinn Siumut hefur sagt skilið við grænlensku landstjórnina, samkvæmt tilkynningu sem birt var eftir hádegið.Það þýðir utanríkisráðherrann Vivian Motzfeldt verður ekki áfram hluti ríkisstjórnarinnar

Við forvitnuðumst um Sólarpönk - Bjartsýnishátíð. Markmið hennar er kynna Sólarpönk hugmyndafræðina og efla bjartsýni. Og okkur veitir sko ekki af bjartsýni þessi misserin. Þuríður Helga Kristjánsdóttir sólarpönkari sagði okkur betur frá.

Í kvöld er frumsýning á þáttunum Taskmaster á Sýn en þar takast þekktir þátttakendur á við alls konar óvenjuleg og skrautleg verkefni sem reyna á bæði útsjónarsemi og húmor. Tvö þeirra sem taka þátt komu til okkar í Síðdegisútvarpið, þau Villi Neto og Snjólaug Lúðvíksdóttir.

Um helgina verður Matarmarkaður Íslands í gangi í Hörpu og þar verður mikið um dýrðir. - Hlédís Sveinsdóttir , matarmarkaðsmóðirin og Kristbjörg Bjarnadóttir eigandi Smakk á Siglufirði sem er súkkulaðiverksmiðja koma til okkar í dag og sögðu okkur frá því sem boðið verður upp á.

Óskarsverðlaunin verða afhent á sunnudaginn í níutugusta og áttunda sinn. Við hringdum til Los Angeles og heyrðum í Margréti Hrafnsdóttur sem er búsett þar og vel tengd inn í kvikmyndaheiminn.

Danskir kjósendur ganga brátt kjörborðinu en þingkosningar fara fram í Danmörku 24. mars. Þá verða öll 179 sæti danska þingsins, Folketinget, undir, þar á meðal fulltrúar frá Grænlandi og Færeyjum. Kosningarnar eru sagðar geta haft mikil áhrif á pólitískt landslag í landinu og framtíð ríkisstjórnar Mette Frederiksen. Við tókum púlsinn á stemningunni í Danmörku og heyrðum í Jórunni Einarsdóttir, grunnskólakennara í Kaupmannahöfn.

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna hefur verið haldin í 12 ár og er farin vera fastur liður í félagslífi framhaldsskóla. Á hátíðinni sýna framhaldskólanemar alls staðar af landinu stuttmyndir eftir sig. Þarna er framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar stíga sín fyrstu spor. Þær Ingigerður Anna Bergvinsdóttir, hátíðarstjóri og Iðunn Úlfsdóttir, ritstjóri sögðu okkur betur frá.

Gísli Marteinn mætti svo til okkar í lok þáttar eldhress, nýstiginn upp úr lungnabólgu.

Birt

13. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,