Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags bókaútgefanda, flutti þrumuræðu á Bessastöðum í gær við afhendingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna þar sem hann vakti athygli á stöðu bóklestur í íslensku samfélagi. Komið sé að neyðaraðgerðum. Heiðar Ingi mætti til okkar.
Vísbendingar eru um að gerviverktaka sé til staðar í ferðaþjónustunni og að þóknun verktaka sé oft langt undir því sem dugar til að standa undir kostnaði og þeim réttindum sem launafólk á samkvæmt kjarasamningum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnustaðaeftirlits ASÍ, sem nálgast má í heild á vef samtakanna. Gerviverktaka í ferðaþjónustu - Pétur Óskarsson er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar hann kom til okkar.
Í gær voru íslensku bókmenntaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og eins og glöggir áhorfendur RÚV sáu var athöfnin í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Einn þeirra sem hlaut verðlaunin heitir Ævar Þór Benediktsson en hann hlaut verðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka ásamt Elínu Elísabetu Einarsdóttur myndhöfundi og þetta var fyrir bókina Skólastjórinn. Ævar kom til okkar
Styrkur svifryks hefur mælst hár í loftgæðamælistöðum í borginni í dag. Á hádegi var gildið fyrir PM10 93,4 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg en til samanburðar má benda á að sólarhringsheilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Svava S. Steinarsdóttir hjá Heilbrigðiseftirlitinu var á línunni.
Fjórtándi febrúar er dagur elskenda, bæði þeirra sem sjást og kyssa en líka þeirra sem þjást og missa. Mikið hefur verið samið og kveðið í tali og tónum um ástina en talsvert meira um ástarsorgina enda býður þjáningin upp á mun fleiri litasamsetningar en hamingjan. Brynhildur Björnsdóttir söngkona og Jökull Jónsson píanóleikari munu því fagna ástarsorginni á degi Valentínusar 14. febrúar og flytja nokkra vel valda hjartabrotssmelli. Við heyrðum í söngkonunni í þættinum.
Máltækni fyrirtækið Bara tala hefur hlotið 25 milljóna króna styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til umfangsmikils þróunarverkefnis sem miðar að því að efla íslenskunám nemenda með annað móðurmál en íslensku í framhaldsskólum landsins.
Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdarstjóri Bara Tala kom til okkar.