Síðdegisútvarpið

Verðbólga og kjarasamningar, nýtt skólaár og Haraldur Noregskonungur

Tólf mánaða verðbólga mælist 5,6% og er mesta í tvö ár. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í 8% í síðustu viku. Verkalýðshreyfingin hefur varað við því forsendur kjarasamninga séu brostnar. Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins komu til okkar.

bráðamatsdeild Landspítala verður opnuð á næstu vikum í Fossvoginum. En hvaða starfsemi verður á þessari nýju deild sem ætlað er dreifa álagi? Telma Huld Ragnarsdóttir, yfirlæknir á almennum lyflækningum hjá Landspítala, kom til okkar og svaraði því.

Símabann, nýtt einkunnakerfi og matsferill - þetta er allt á dagskrá á nýju skólaári sem er hafið. Breytingarnar sem eru taka gildi eru þó ekki óumdeildar og þykir mörgum í skólasamfélaginu þörf á meira samráði. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, var hjá okkur.

Leikfélag Fljótsdalshéraðs sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem félagið vekur athygli á alvarlegum skorti á húsnæði fyrir stærri menningarviðburði á Egilsstöðum. Þar er meðal annars bent á hvorki fullnægjandi aðstaða til sýningarhalds ljóst hvernig framtíð slíkra viðburða verður á Egilsstöðum ef ekki finnst lausn á húsnæðismálunum.Málið er sérstaklega brýnt um þessar mundir því fram undan er sextugsafmæli Leikfélags Fljótsdalshéraðs og leikfélagið ætlar gera því rækilega skil og í því samhengi var vonast hægt yrði nýta Valaskjálf en mikil óvissa ríkir um það. Við hringjum austur og forvitnumst betur um þessa stöðu, yfirlýsinguna og verkefnin fram undan Ágúst Bragi Daðason varaformaður Leikfélags Fljótsdalshéraðs var á línunni.

Haraldur Noregskonungur liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ósló. Konungurinn, sem er 89 ára gamall, var lagður inn fyrir tíu dögum vegna vökvasöfnunar. Norskir miðlar fylgjast grannt með og færa þjóðinni fréttir af ástandi konungsins. Við ræddum við Atla Stein Guðmundsson, blaðamann mbl.is og Morgunblaðsins, um málið.

Bæj­ar­há­tíð Mos­fells­bæj­ar, Í tún­inu heima hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Margar hefðir hafa skapast í kringum hana, svo sem garðtónleikar, götugrill og brekkusöngur í Álafosskvos. Hátíðin hefur frá upphafi verið hugsuð sem þátttökuhátíð þar sem íbúar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir bæjarins taka höndum saman og móta dagskrána. Hjalti Úrsus Árnason Mosfellingur ætlar segja okkur aðeins frá hátíðinni en hann tekur m.a. þátt í Kjúklingafestivali í Mosó.

Birt

27. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,