
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Klukkan fjögur rann út frestur til að rifta kjarasamningum. Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, var á línunni í upphafi þáttar og sagði okkur frá næstu skrefum.
Neytendablaðið sem Neytendasamtökin gefa út er með áhugaverða úttekt á rétti sjúkratryggðra að leita eftir mikilvægri heilbrigðisþjónustu utan landsteinana. Rétturinn er víðtækari en margir gera sér grein fyrir. Hann er þó ákveðnum skilyrðum háður. Berlind Ýr Karlsdóttir, lögmaður hjá Sjúkratryggingum, fór yfir þessi mál með okkur.
Fyrsta framboðið gegn Gianni Infantino, forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins, barst í gær. Það er Svisslendingurinn Ramon Vega sem ætlar að bjóða samlanda sínum birginn. Infantino hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarna mánuði og þá sérstaklega eftir Heimsmeistaramót karla í sumar. Norska knattspyrnusambandið hefur sent FIFA kvartanir vegna meintrar valdníðslu Infantino og tengsla hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta, og farið fram á rannsókn. Valur Páll Eiríksson íþróttafréttamaður kom til okkar.
Nóbelsverðlaunin í Vesturbæinn! Kanadísk-íslenski rithöfundurinn Anne Carson hlaut í morgun Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Anne er frá Kanada en hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022, og þó að margir Íslendingar séu nú agalega montnir af Anne að þá vita færri hver þessi kona er. Til að segja okkur betur frá þessum magnaða rithöfundi fengum við Jóhannes Ólafsson, umsjónarmann þáttanna Bara bækur á Rás 1, til okkar.
Tuttugu árum eftir leiðtogafundinn í Höfða kom Míkhaíl Gorbatsjov aftur til Íslands til að minnast þessa merka atburðar. Í aðsendri grein á Vísi rifjar Einar Bárðarson upp þessa áhugaverðu heimsókn og kynni sín af leiðtoga Sovétríkjanna. Einar kom til okkar á eftir og segir okkur betur frá.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin The Pigeon film festival fer fram á Ísafirði um helgina. Þar kennir ýmissa grasa. Sýna á kvikmyndir frá fjölmörgum löndum sem og íslenskum. Opnunarmyndin er til að mynda heimildarmynd um trúbadúrinn Sigga Björns. Við hringjum vestur og tölum við Steingrím Rúnar Guðmundsson verkefnisstjóra PIFF.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.