Síðdegisútvarpið

Matarkarfan, danskir dagar og hávaði af þyrlu, kennslu og einkaflugvélum

Hundabólusetningar eru eitthvað sem flestir hundaeigendur telja sjálfsagðan hluta af umönnun gæludýrsins síns. En er uppi óvenjuleg staða því hundabóluefni er ekki fáanlegt hér á landi og því hafa dýralæknar ekki getað tekið við hundum í reglubundnar bólusetningar. Hvað þýðir þetta fyrir hundaeigendur, hversu alvarleg er staðan og hvenær búast við bóluefni verði aftur á boðstólum? Við ætlum ræða þetta við Halldóru Hrund Guðmundsdóttur, dýralækni hjá Dýraspítalanum í Víðidal.

Finnur Oddson, forstjóri Haga, verður gestur okkar á eftir. Við ætlum ræða við hann um innkaupasamstarf Haga og Salling Group sem þeirra sögn hefur áhrif á matarkörfu íslenskra heimila. Tilfinning neytenda er þó matarkarfan hækki og hækki með þekktum afleiðingum á verðbólguna. Hvað er hægt gera betur hjá dagvöru risunum til sporna við hækkandi verðbólgu?

Við ætlum slá á þráðinn vestur í Stykkishólm en þar verða Danskir dagar haldnir hátíðlegir um helgina - sem allt veit um þá veislu heitir Ólöf Inga Stefánsdóttir og er framkvæmdastjóri hátíðarinnar hún verður á línunni.

Um miðjan júní lagði sjósundsmaðurinn Sigurgeir Svanbergsson af stað í metnaðarfulla tilraun til synda endilangt Lagarfljótið, en þurfti hætta eftir 15 kílómetra vegna ofkælingar. ætlar hann reyna aftur um helgina, betur undirbúinn og við hagstæðari aðstæður. Markmiðið er ljúka þessari einstöku þrekraun og um leið safna fyrir Píeta-samtökin. Við heyrum í Sigurgeiri.

Finnur Pálmi Magnússon skrifaði áhugaverðan pistil á Facebook þar sem hann var velta fyrir sér hávaðamengun frá Reykjavíkurflugvelli og fannst hún hafa aukist töluvert undanfarin ár eða áratugi. Hann lagðist í rannsóknarvinnu með aðstoð gervigreindarinnar og niðurstaðan er áhugaverð. Finnur Pálmi ætlar segja okkur meira af þessu grúski sínu.

bei

Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin fer fram á Hjalteyri og er óhagnaðardrifinn menningarviðburður. Tilgangurinn er skapa stuð og stemningu sem tosar ekki of mikið í budduna. Fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram. Við hringjum í Söru Bjarnason sem er einn skipuleggjenda.

Birt

14. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,