Síðdegisútvarpið

Atgervisflótti úr íslenska kvikmyndabransanum, Reykjavík folk festival og Sólmyrkvamót í golfi

Í gær fengum við til okkar Svein Ásgeir Jónsson sem sagði okkur reynslusögu sína en hann var ekki ánægður með sekt sem hann fékk í heimabankann sinn eftir hafa notað bílastæði við Nóatún og pizzastað þar. Hann talaði um löglega rukkunargildru og vildi meina verið væri svindla á fólki. Auður Lilja Davíðsdóttir fulltrúi Green parking sem rukka á umræddu bílastæði kom til okkar og fór yfir málið.

Jóhann Hlíðar Harðarson verður með sitt hálfsmánaðar Spánarspjall í dag. Hann sagði okkur frá dularfullu hvarfi konu sem rétt skrapp í næsta hús og sást ekki meir, frá hjónum sem réttað er yfir en þau lokuðu sig og börn sín inni í 4 ár vegna hræðslu við covid og frá yfirmanni efnahagsbrotadeildar lögreglunnar sem hafði athyglisvert áhugamál svona miðað við stöðu hans.

Reykjavík Folk festival fer fram um helgina Guðmundur Atli Pétursson einn aðstandenda hátíðarinnar kom til okkar.

Árangur norðmanna á nýafstaðinni Óskarsverðlaunahátíð er afrakstur markvissrar stefnu og fjárfestinga til margra ára, sem sést m.a. í tíu tilnefningum og Óskarsverðlaunum fyrir bestu erlendu myndina segir Hilmar Sigurðsson, kvikmyndaframleiðandi sem hefur starfað lengi í íslenskri kvikmyndagerð. Hilmar hrósar þessari uppbyggingu en gagnrýnir á sama tíma stefnuna hér heima, þar sem kvikmyndastefna var sett fram án fjármögnunar og niðurskurður tók við í stað uppbyggingar. erum við farin finna fyrir því með auknum atgervisflótta úr greininni segir Hilmar í lok FB færslu sinnar. Hilmar kom til okkar í Síðdegisútvarpið í dag.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir hafnaði í 10. sæti á Bocuse d’Or Europe í Marseille í dag og tryggði sér þar með sæti í heimsúrslitunum í Lyon á næsta ári. Þar komast aðeins tíu efstu áfram.Hún vakti athygli fyrir notkun á íslensku hráefni, meðal annars wasabi og skyri, og stóð sig vel í harðri samkeppni fremstu matreiðslumanna Evrópu. Þjálfari íslenska liðsins er Sigurður Helgason og við heyrðum í honum í Síðdegisútvarpinu í dag.

Golfklúbbur Patreksfjarðar boðar til einstaks golfmóts í sumar: Sólmyrkvamótið 2026. Patreksfjörður er í hópi þeirra staða á jörðinni þar sem upplifunin af sólmyrkvanum þann 12 ágúst í sumar verður hvað dýpst og lengst. Það er ljóst golfáhugafólk á von á góðu. Rögnvaldur Johnsen sagði nánar frá þessu móti en hann er stjórnarmaður í Golfklúbbi Patreksfjarðar.

Birt

17. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,