Ísland stendur töluvert aftar en hinar Norðurlandaþjóðirnar hvað varðar stöðu og þroska ríkja í gervigreind. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem Almannarómur, miðstöð máltækni, gaf út í morgun. Skýrslan fjallar um stöðu gervigreindar á Íslandi og verður uppfærð ársfjórðungslega. Hann Óttar Kolbeinsson Proppé, yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála hjá miðstöðinni, kom til okkar, og sagði okkur frá skýrslunni.
Í síðustu viku ræddum við um málefni Grindavíkur og ræddum þá við Guðbjörgu Eyjólfsdóttur sem er formaður Járngerðar sem eru hollvinasamtök um uppbyggingu og framtíð Grindavíkur. Það var þungt í henni hljóðið en í viðtalinu kom fram að Grindvíkingum finnist eins og ákvarðanataka fari fram án nægilegs skilnings á aðstæðum á staðnum og sérstaklega þegar kemur að skólahaldi. Skarphéðinn Berg Steinarsson sem á sæti í Grindavíkurnefnd kom til okkar.
Lungnasamtökin, Astma-og ofnæmisfélag Íslands, Hjartaheill og SÍBS hafa myndað breiðfylkingu sem kallar eftir því að aðgerðir til að draga úr svifryksmengun verði settar á dagskrá í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Andrjes Guðmundsson formaður Lungnasamtakanna kom til okkar.
Nú eru sauðfjárbændur landsins að gera allt klárt fyrir sauðburð sem er að hefjast og sumstaðar er hann hafinn. Við tökum stöðuna á sauðfjárbændum og stöðu þeirra í leiðinni. Við hringdum í formanninn Eyjólf Ingvi Bjarnason.
Í 57. Grein umferðarlaga segir : “Stjórnanda ökutækis er við akstur óheimilt að nota farsíma, snjalltæki eða önnur raftæki sem truflað geta aksturinn, án handfrjáls búnaðar. Í 3. gr. eru snjalltæki skilgreind með þessum hætti: Hvert það tæki, með eða án farsímavirkni eða nettengingar, sem m.a. er hægt að nota til samskipta, skeytasendinga, leikja og/eða leiðsagnar” Hvernig gengur okkur að framfylgja þessum lögum? Gunnar Geir Gunnarsson er deildarstjóri öryggis og fræðsludeildar Samgöngustofu hann kom til okkar.
Við ætlum að enda þáttinn á því að heyra af Jazzþorpinu í Garðabæ en þorpið er að festa sig í sessi sem ein af skemmtilegri bæjarhátíðum landsins þar sem Jazz og Góði Hirðirnn vinna saman að góðu málefni. Ómar Guðjónsson heldur utan um herlegheitin og hann kom til okkar.