Niðurstöður PISA könnunarinnar hefur heldur betur verið í fréttum og neikvæðar niðurstöður hennar ræddar. Skólameistari Grunnskólans í Hveragerði, Sævar Þór Helgason, vildi á Facebook í morgun beina sjónum sínum að því jákvæða sem þó var hægt að lesa úr niðurstöðunum. Sævar var á línunni.
Skíðasvæðið í Skálafelli hefur verið lokað undanfarin fjögur ár og nú er uppi hávær umræða um að hætta við alla frekari uppbyggingu á svæðinu í stað þess að opna það aftur. Samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins samþykkti nýverið að óska eftir því að stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu endurskoði samkomulag frá árinu 2018 um uppbyggingu á svæðinu. Einn nefndarmanna, Magnús Benediktsson, vill fresta því að hefja uppbyggingu þar enda kostnaðurinn áætlaður ríflega 6 milljarðar sem hann segir að sveitarfélögin eigi ekki til. Magnús var hjá okkur í gær. Fulltrúi Mosfellsbæjar er á öndverðu meiði og vill hefja uppbygginguna strax. Valdimar Breiðfjörð Birgisson kom til okkar.
Eldgos stöðvar allt flug frá Íslandi og tveir ókunnugir ferðalangar verða strandaglópar. Með þeim takast kynni og þau ákveða að stela bíl til að komast að gosstöðvunum. Það sem hófst sem bílferð breytist í ferðalag sem gjörbreytir lífi þeirra. Einhvern veginn svona hljóðar umfjöllun um kvikmynd Jóns E. Gústafssonar, Anorgasmia – Allt sem við gerum til að lifa af, sem er að fara í sýningar í Bíó Paradís eftir mjög gott gengi á kvikmyndahátíðum víða um heiminn. Leikstjórinn og handritshöfundurinn kom í Síðdegisúvarpið í dag.
Kosningar eru framundan í Svíþjóð á föstudag og laugardag. Þar á að kjósa í þingkosningum og sveitarstjórnar-, og landsþingkosningum. Urður Örlygsdóttir, fréttamaður, er nýflutt til Stokkhólms. Hún sagði okkur af lífinu í Svíþjóð og af því helsta sem er í gangi þar í aðdraganda kosninganna.
Um liðna helgi opnaði nýtt baðlón í Hveragerði, Reykjaböð, sem bætist í ört vaxandi flóru baðlóna víða um land. Þrátt fyrir að slíkum áfangastöðum hafi fjölgað mikið á undanförnum árum virðist áhugi bæði Íslendinga og erlendra ferðamanna síður en svo vera á undanhaldi. Við ætlum að ræða þessa þróun og nýja baðlónið í Hveragerði við Jóhanna Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóra Reykjabaðanna var á línunni.
Golf með Bödda Bergs er nýtt hlaðvarp í umsjóns Böðvars Bergssonar. Eins og nafnið gefur til kynna er þarna fjallað um golf frá ýmsum hliðum og sumir myndu kalla þetta smá nördaspjall um golf – en er það ? Böddi svaraði því í þættinum í dag.