Síðdegisútvarpið

Álag á starfsfólk barnaverndar, verðlauna kaffi og lengsti biðlistinn

Mikið og viðvarandi álag á starfsfólk Barnaverndar Reykjavíkur hefur leitt til þess að lögum og verklagi er ekki alltaf fylgt við vistun barna, eftirliti er ekki ávallt sinnt samkvæmt lögum og dæmi eru um að börn fái ekki þjónustu við hæfi. Þetta kemur fram í úttekt á fyrirkomulagi fósturmála hjá Barnavernd Reykjavíkur. Stöðugildum hefur fjölgað undanfarin ár en ljóst er að frekari aðgerða er þörf. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, formaður velferðarnefndar Reykjavíkurborgar, kom til okkar.

Í framhaldi af umfjöllun Kveiks um lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum óskaði Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, eftir sérstakri umræðu um málið á Alþingi og var umræða um málefni í dag þar sem Alma Möller heilbrigðisráðherra var til svara. Halla Hrund kom til okkar og fór yfir það sem kom út úr þessum umræðum á Alþingi.

Kaffistofan á Akureyri hefur verið valin sigurvegari á Íslandi í kosningu snjallforritsins European Coffee Trip fyrir árið 2026. Lesendur kusu á milli kaffihúsa sem bjóða upp á svokallað sérkaffi, þar sem kaffibaunirnar eru í hæsta gæðaflokki. Kaffistofan á Akureyri fékk flest atkvæði hérlendis en alls kusu ríflega 30 þúsund manns sín uppáhaldskaffihús. Eitt þeirra var Kaffistofan. Ármann Atli Eiríksson eigandi Kaffistofunnar talaði við okkur um þennan heiður.

Eigendur Andrá neyddust til að loka fataversluninni tímabundið eftir að eldur kviknaði í kjallara hótels sem er í sama húsi við Laugaveg 16. Tjónið var töluvert en eftir nokkrar vikur tókst loks að opna verslunina á ný í öðru húsnæði. Við ræddum við mágkonurnar Evu Katrínu Baldursdóttur og Steinunni Hrólfsdóttur, sem reka Andrá, um vinnuna sem tók við eftir eldsvoðann og hvernig gekk að finna nýtt húsnæði.

Í Silfrinu á mánudagskvöldið var farið víða um stöðu heilbrigðismála, en ekki einu orði vikið að heimsins lengstu biðlistum barna og fullorðinna þegar kemur að ADHD greiningum. Þetta segir Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakana í aðsendri grein á Vísi. Hann segir ennfremur að tölur frá Umboðsmanni barna staðfesti að staðan heldur áfram að versna. Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna var gestur okkar.

Óperudagar hefjast næsta sunnudag en hátíðin fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Bjóða á upp á dagskrá þar sem ópera, tónlist, sönglist og sviðslistir mætast á venjulegum og óvenjulegum stöðum í Reykjavík og nágrenni. Gissur Páll Gissurarson og Margrét Hrafnsdóttir komu til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,