
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Djúp lægð gengur yfir landið. Þök hafa fokið af húsum, sjór hefur flætt yfir bryggju á Skagaströnd, og í kvöld er svo von á stórhríð. Við heyrðum í Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttakonu sem var stödd á Ísafirði, Ólöfu Rún Erlendsdóttur fréttakonu sem var á Siglufirði og Reimari Viðarssyni björgunarsveitarmanni í aðgerðastjórninni á Akureyri.
Kveikur fjallaði í gær um markaðsráðandi stöðu Ölgerðarinnar og vinnubrögð fyrirtækisins. Meðal þess sem fram hefur komið er að hlutdeild Ölgerðarinnar í bjórsölu ÁTVR sé 52 prósent. Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR hefur sagt að Ölgerðin njóti ekki neinna sérréttinda hjá ríkisfyrirtækinu. Regluverk ÁTVR sé mjög bundið lögum, reglugerðum og reglum. Jón Páll Haraldsson, sem hefur reynslu af innflutningi áfengis og veitingabransanum, telur vinnulag ÁTVR afturámóti ekki ná að tryggja jafnræði meðal birgja og heldur því fram að Ölgerðin njóti ákveðinna forréttinda. Við ræddum við Jón Pál.
Þóranna Hrönn Þórsdóttir greindist afar óvænt með sýkingu í heila um páskana. Hún var lögð inn á spítala og fór í heilmiklar rannsóknir og í kjölfarið í endurhæfingu á Grensásdeild Landspítala sem hún segist eiga mikið að þakka. Hún sendi útkall má segja á Facebook þar sem hún hvatti fylgjendur sína til að gefa Grensásdeildinni púsl, perlur og annað föndurdót sem nýst getur í endurhæfingu. Viðbrögðin létu alls ekki á sér standa og streymdu til deildarinnar hið ýmsa sem var farið að safna ryki í geymslum landsmanna. Þóranna kíkti til okkar og sagði okkur frá reynslu sinni.
Í versta falli eru nýir gamanþættir sem verða sýndir á Sjónvarpi Símans í desember. Þættirnir fjalla um Katrínu sem lítur svo á að líf sitt væri líklega dans á rósum ef móðir hennar væri edrú, systir hennar ekki í stöðugum vandræðum, karlmenn aðeins almennilegri og moldríki yfirmaðurinn ekki svona grunsamlegur. Eftir því sem vandamálin hrannast upp verður þó sífellt óljósara hvort óheppnin elti Katrínu eða hvort hún hafi sjálf einstakt lag á að flækja líf sitt. Um er að ræða gamandrama um fjölskyldubönd, ástina, óuppgerða fortíð og vonina um að á morgun gangi betur að hafa stjórn á eigin tilveru. Þeir Helgi Jóhannsson og Hörður Sveinsson ritstýra þáttunum sem Anna Hafþórsdóttir rithöfundur skrifar og leikur aðalhlutverkið í. Anna kíkti til okkar og sagði okkur frá þessum nýju þáttum og fleiru sem hún er að brasa þessa dagana.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.