Síðdegisútvarpið

Landsleikur, breytingar á útlendingalögum, lygarnar um Ísland, netöryggi og hámhorfið

A landslið kvenna í knattspyrnu mætir Króatíu í dag kl 17:30 og er í beinni á RÚV 2. Leikurinn er seinni umspilsleikur liðanna um sæti á HM í Brasilíu 2027. Ísland vann fyrri leikinn 4-0 úti. Ef Ísland fer áfram mætir það sigurvegaranum úr einvígi Portúgals og Norður-Írlands. Sigurvegarinn úr því einvígi fer á HM. Portúgal leiðir einvígið 0-3 fyrir seinni leikinn. Almarr Ormarsson íþróttafréttamaður er að gera sig klárann fyrir leikinn niður á Laugardalsvelli og hann er á línunni.

Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum þar sem lagt er til að sérstakt dvalarleyfi vegna vistráðningar sem við þekkjum sem Au pair fyrir fólk utan EES-svæðisins verði lagt niður er komið í samráðsgátt stjórnvalda. Dómsmálaráðherra segir að dvalarleyfi hafi einfaldlega sett manneskjur í of viðkvæma stöðu. Á árunum 2017-2024 fóru um 78% dvalarleyfa til ríkisborgara Filippseyja og dæmi séu um að ungar stelpur þaðan vinni langt umfram þann vinnutíma sem samkomulagið gengur út á og vinni jafnvel fyrir fleiri en eina fjölskyldu. Ein þeirra sem gagnrýnt hefur frumvarpið er Greta Salóme Stefánsdóttir. Hún ætlar að fara yfir þá gagnrýni sína hér á eftir.

Um helgina fór í þriðja sinn fram ráðstefnan Think Nordic í Búdapest þar sem sérfræðingar og vísindafólk frá norðurlöndum kom saman og deildi hugmyndum sínum. Þá var varpað fram spurningum á borð við hvernig norræna glæpasagan hefur orðið að einu þekktasta menningarlega vörumerki heims, hver lykillinn að andlegri vellíðan og heilsu sé og hvað við getum lært af myrkri fortíð Íslands. Íslenski rithöfundurinn, hlaðvarpsstýran og sagnfræðingurinn Sigrún Elíasdóttir hélt erindi sem bar titilinn Lygarnar sem segjum um Ísland. Hún ætlar að kíkja til okkar og segja frá erindinu, og þessum lygum sem hún afhjúpaði í Ungverjalandi um helgina.

Á morgun kemur út glæpasagan Svartakóf eftir Ragnar Jónasson. Þetta er þriðja bókin um Helga Reykdal lögreglumann en Hvítalogn var að koma út í Þýskalandi og stökk beint í 8. sæti kiljulistans. Bókin kemur út nánast samtímis á Íslandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Ragnar kíkti til okkar og sagði okkur frá nýju bókinni.

Tölvuþrjótar hækkuðu hitastig í kælum margra franskra matvöruverslana upp í 50 gráður á Celsíus yfir nótt, sem olli eldsvoðum og matarskemmdum í hundruðum verslana víðs vegar um landið. Um var að ræða umfangsmikla árás sem hafði áhrif á nettengda kæla hjá nokkrum stórum matvörukeðjum í Frakklandi. En gæti þetta gerst auðveldlega hér á landi og hvernig gerist svona? Dr. Ýmir Vigfússon, tæknistjóri hjá netöryggisfyrirtækinu Keystrike var á linunni.

Hálfsmánaðarlega kemur sjónvarpsgúrúinn okkar Ragnar Eyþórsson í heimsókn og mælir með sjónvarpsefni sem hentar vel í hámhorfið.

Kveikur er á dagskrá í kvöld á RÚV. Í þætti kvöldsins á að fjalla um þau samkeppnislagabrot sem Samkeppniseftirlitið grunar Ölgerðina um en eins og fram hefur komið í fréttum þá framkvæmdi Samkeppniseftirlitið á föstudag húsleit hjá Ölgerðinni. Þau Jóhann Bjarni Kolbeinsson, sem vann umfjöllunin og Ragnhildur Þrastadóttir ritstjóri Kveiks kíktu til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,