Síðdegisútvarpið

Fiskur og franskar á Íslandi slær í gegn, menningarmiðstöð í Smáralind og Arna Sigríður á Olympiumóti fatlaðra

Besti alþjóðlegi “Fish & chips” staðurinn er víst á Mývatni en Fish and chips lake Mývatn, eins og staðurinn heitir, varð sigurvegari í flokknum alþjóðlegur fiskur og franskar veitingastaður ársins á hátíð sem haldin er ár hvert í Lundúnum af Landssambandi breskra fisksteikhúsa. Við heyrðum í Unni Sigurðardóttur sem er framkvæmdastjóri og einn eigenda Fish and chips lake Mývatn.

Mikil óánægja er með framkvæmd kílómetragjaldsins svokallaða en á samfélagsmiðlum kvartar fólk undan fjölda rukkana og ber þar saman skjáskot af reikningum og fær hlutina ekki til ganga upp. Talað er jafnvel um tilhæfulausar rukkanir og mikill styr hefur verið um vinnubrögð Skattsins. Ævar Ísberg, deildarstjóri hjá Skattinum,fór yfir málið með okkur.

Arna Sigríður Albertsdóttir keppti í dag í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu á Vetrarólympíuleikum fatlaðra. Keppnin gekk ekki alveg áfallalaust fyrir sig því hún féll í krefjandi brekku á brautinni og þurfti skipta um skíði, sem tafði hana nokkuð. Arna endaði í 19. sæti, en þetta var jafnframt síðasta grein hennar á leikunum. Við heyrðum í Örnu Sigríði.

Við rákumst á viðtal í Austurfrétt við Elínu Káradóttur, eiganda Byr fasteignasölu á Egilsstöðum, þar sem hún veltir upp spurningunni hvort fólk sem fer í húsaskoðanir hafi í raun fengið staðfest það hafi efni á eigninni. Elín telur þessu ætti breyta og segir eðlilegra kaupendur fari fyrst í greiðslumat hjá banka áður en þeir skoða fasteignir eins og víða er gert erlendis. Við hringdum í Elínu og ræddum þetta við hana.

Kópavogsbær og Heimar ehf. hafa gert með sér samning um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind. Verkefnið verður þróað af Kópavogsbæ í samstarfi við Heima en um framsýna hugsun er ræða á sviði menningarmála þar sem fléttast saman nútímabókasafn í bland við menningarupplifun og fjölbreytta þjónustu segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Oddviti Viðreisnar í bænum skrifar harðorða grein á Vísi í dag um þetta samtarf og segir þar Kópavogsbær hafi með þessu tekið sér reka Vetrargarðinn í Smáralind. Fyrir það áætlað bærinn greiði um 1,5 milljarð króna á samningstímanum og um ræða tíu ára óuppsegjanlegan samning. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, kom til okkar.

Gamanleikurinn Heilsugæslan verður frumsýndur í Tjarnarbíói á morgun. Um er ræða hápólitískan gamanleik eftir Lýð Árnason lækni. Heilsugæslan var fyrst sýnd árið 2009 af Kómedíuleikhúsinu og Í einni sæng en hefur verkið verið uppfært enda heimsfaraldur og allskonar greiningar komið inní heilbrigðisgeirann síðan. Þau Lýður Árnason, Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk Björnsdóttir komu og sögðu okkur frá verkinu.

Birt

11. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,