Við byrjuðum þáttinn á því að heyra hvað væri efst á baugi í umræðum á Alþingi Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttaritari kom til okkar.
Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn hátíðlegur víða um land. Markmið dagsins er að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer. Þema 112 dagsins er 30 ára afmæli Neyðarlínunnar. Hjalti Sigurðsson er verkefnastjóri 1-1-2 dagsins. Hann kom í Síðdegisútvarpið.
Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsþáttaframleiðandi hér á RÚV, er mikill áhugamaður um sjónvarp. Hann ætlar framvegis að kíkja til okkar á þriðjudögum og benda okkur og hlustendum á einhverja sjónvarpsþætti sem við erum hugsanlega að missa af. Fjölmargir eru alltaf að leit að góðum sjónvarpsþáttum til að horfa en finna aldrei neitt.
Bílaframleiðsla í heiminum er á miklum umbrotatímum. Í áratugi hafa risar á borð við Toyota og Volkswagen verið í forystu, bæði þegar kemur að magni og tækniþróun. En landslagið er að breytast hratt. Rafbílavæðingin er að kollvarpa leiknum, nýir aðilar ryðja sér til rúms og Kína hefur á skömmum tíma orðið stórveldi í bílaframleiðslu. En hverjir eru raunverulega í forystu í dag – og hvað þýða þessar breytingar fyrir framtíð bílsins? Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins kom til okkar.
Í dag var sagt frá því að ákvörðun hefði verið tekin um opnun sérhæfðar
ofbeldismóttöku innan Landspítala sem mun bera heitið Bryndísarhlíð en
minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl. Húsið er fundið og það
hlýtur að teljast mikið fagnaðarefni. Þær Nanna Briem, framkvæmdastjóri geðþjónustu fullorðinna á Landspítala, Dögg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri kvenna- og barnaþjónustu Landspítala og Guðrún Inga Sívertsen, formaður stjórnar Minningarsjóðs Bryndísar Klöru komu til okkar.
Í kvöld fer fram leikur Fjölnis og SR í íshokkí karla. Leikurinn var færður í Skautahöllina í Laugardal til að getað minnst leikmanns SR sem lést í bílslysi í
síðustu viku. Allur aðgangseyrir mun renna til fjölskyldu leikmannsins unga,
Patreks Frey Sveinssonar. Bjarni Helgason, varaformaður Skautafélags Reykjavíkur, var á línunni.
Í kvöld verður fyrsti þáttur Torgsins á þessu ári á dagskrá. Þátturinn er umræðuþáttur íbeinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. En hvað á að ræða um í kvöld? Þau Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson, stjórnendur Torgsins, komu til okkar.