Síðdegisútvarpið

Jarðskjálftahrina, Landeyjarhöfn og landamærastöðin á Seyðisfirði

Staða húsnæðismála lögreglunnar á Seyðisfirði er ein alvarlegasta á landinu. Þar sinnir lögregla mikilvægu landamæraeftirliti og hefur undanfarna mánuði staðið í ströngu vegna fíkniefnainnflutnings um höfnina. Við ræddum við Jónínu Brynjólfsdóttur, varaþingmann Framsóknarflokksins og forseta sveitarstjórnar Múlaþings.

Kröftugur skjálfti skók suðvesturhornið klukkan korter í tvö og fannst víða. Skjálftinn er einn af ríflega 500 sem hafa mælst í hrinu á Mosfellsheiði, vestan við Húsmúla, sem hófst í gærmorgun. Við ræddum við Benedikt Halldórsson, fagstjóra jarðskjálftavár hjá Veðurstofunni.

„Upp úr tilraunaglasinu Hagnýting rannsókna“ er heitið á erindi sem Hildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís og lektor við Háskóla Íslands, flytur á málþingi Matís á morgun. Erindið fjallar um hvernig rannsóknir og vísindavinna verða raunverulegum lausnum, hagnýtum afurðum og verðmætum fyrir samfélag og atvinnulíf. Hildur Inga fræddi okkur um verðmætasköpun úr hliðarhráefnum í matvælavinnslu sem dregur úr sóun.

Síðustu átta ár hefur engin vinna farið fram sem miðar því bæta dýpkunina við Landeyjahöfn. Sigurður Áss Grétarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri siglingasviðs hjá Vegagerðinni, segir stjórnvöld hafa lítinn áhuga á fylgja þessu verkefni eftir og ekki hafi verið heldur staðið rétt dýpkun við höfnina. Öldufarið ekki alltaf skýringin á því hvers vegna sum árin fyllist hafnarmynnið af sandi og önnur ekki. Við fórum nánar yfir þetta með Sigurði hér á eftir.

Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir 10 daga og spennan er farin magnast. Við ætlum fara yfir það helsta sem þarf vita fyrir mótið, hverju búast við og hvaða lið og leikmenn vert er fylgjast sérstaklega með. Helga Margrét Höskuldsdóttir heldur utan um umfjöllun HM hér á Ruv ásamt Eddu Sif Pálsdóttur og við ætlum ræða við Helgu um fyrirkomulag mótsins og stemninguna í aðdragandanum og helstu sýningartíma á Íslandi.

Fyrstu ilmtónleikar íslandssögunnar fara fram í Austurbæ á föstudaginn. Tónleikarnir eru hluti af Listahátíð sem var sett á laugardaginn og eru undirlagi Ilmgerðarinnar Fishersund. Tónlistarmennirnir Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm flytja tónverk sín sem endurspegla óefnislegan ilm Fischersunds. Sindri Már Sigfússon og Lilja Birgisdóttir komu til okkar.

Birt

1. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,