Síðdegisútvarpið

Fréttir í opinni dagskrá, braskvæðing á fasteignamarkaði og frumkvöðlar í versló

Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður leigjendasamtakanna kemur til okkar á eftir en fyrirtæki sem er leiðandi í þjónustu og tryggingarekstri fyrir leigufélög og leigusala í Bretlandi framkvæmdi rannsókn á skammtímaleigumarkaði í höfuðborgum aðildaríkja OECD. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar kemur í ljós það er ábatasamast fjárfesta í íbúðahúsnæði til heimagistingar á skammtímaleigumarkaði í Reykjavík. Við ætlum ræða þetta við Guðmund Hrafn á eftir, einnig eignarhald á húsnæðismarkaði og kaup lífeyrissjóðanna á leigufélaginu Heimstaden sem Guðmundur kallar braskvæðingu á íslenskum húsnæðismarkaði.

Ferðamálastofa hvetur ferðaþjónustuaðila til senda stofnuninni ábendingar um aðila sem mögulega eru starfa án tilskilinna leyfa. Allar slíkar ábendingar eru teknar alvarlega, samband haft við viðkomandi og gripið til viðeigandi aðgerða. Við ætlum ræða við Helenu Karlsdóttur forstöðumann stjórnsýslusviðs Ferðamálastofu

Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða í opinni dagskrá á frá og með mánudeginum í næstu viku. Við ætlum freista þess af Kolbeini Tuma Daðasyni á eftir til ræða þessar gleðifréttir.

Um helgina verður vor - matarmarkaður Íslands haldin í Hörpu. Opið frá kl. 11:00 til 17:00 báða daga og frítt inn. Þarna koma matvælaframleiðendur Íslands saman með sætt, seigt og safaríkt og bjóða fólki upp á smakk og sýningu. Einkunarorð Matarmarkaðar Íslands eru upplifun, uppruni og umhyggja. Þau koma til okkar Hlédís Sveinsdóttir og Björn frá Salverki og segja okkur betur frá því sem í vændum er.

Við fáum til okkar tvo nema úr Verslunarskóla Íslands á eftir þá Þengil Orrason og Tómas Berg Þórðarson en þeir eru í frumkvöðlafræði í skólanum þar sem þeir eiga stofna fyrirtæki og koma vöru í sölu á nokkrum mánuðum. Við ætlum forvitnast um áfangann og heyra hvaða vöru þeir félagar ásamt fleirum eru þróa en okkur skylst varan tengist tannheilsu.

Í gær ræddum við við oddvita Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum Eyþóri Harðarsyni sem hafði áhyggjur af kostnaði og gerð listaverks eftir Ólaf Elíasson sem til stendur reisa í Vestmannaeyjum og verður skírskotun í eldgosið í Vestmannaeyjum. Áður hafði Morgunblaðið greint frá því listaverkið, sem átti kosta 120 milljónir króna, verði líklega dýrara auk þess sem til standi leggja göngustíg í gegnum Eldfell en slikt hraun er friðað. Bæjarstjórnin í eyjum fundaði í gær og forseti bæjarstjórnar Páll Magnússon verður á línunni hjá okkur á eftir en málið var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í gær og við fáum vita hvað þar kom fram.

Frumflutt

12. apríl 2024

Aðgengilegt til

12. apríl 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,