Síðdegisútvarpið

ADHD sumarið, kaffimenning og Viktor á Grillið

Sumarfríin eru framundan, dagskrá skólanna tæmast og við tekur sól, sumar og taumlaus gleði....eða hvað? Hjá börnum með ADHD og fullorðnum getur þessi tími valdið mikilli streitu og vanlíðan ef ekki tekst vel til. Doktor.Drífa Björk Guðmundsdóttir kemur til okkar og fer yfir málið.

Fjölskyldufyrirtækið Te og kaffi fagnaði 40 ára afmæli á dögunum en mörg vötn hafa runnið til sjávar síðan þau opnuðu litla sælkerakaffiverslun við Barónsstíg 1984 og mikil þróun og gerjun í íslenskri kaffimenningu frá því þá. Kristín María Dýrfjörð eigandi Tes og kaffis fer á hundavaði yfir íslenska kaffimenningu.

Óvæntasti forsetaframbjóðandinn í ár hlýtur vera Viktor Traustason sem varð 35 ára á árinu. Hann verður á grillinu í dag, þar sem við ræðum við forsetaframbjóðendur fyrir forsetakosningarnar.

Bókin Mennska kemur út í vikunni og á hún erindi við öll sem hafa glímt við skömm og reynt skila henni, finnst erfitt taka pláss í samfélaginu eða hafa fórnað hluta af sjálfum sér af ótta við viðbrögð annarra - líkt og segir í kynningartexta. Höfundurinn Bjarni Snæbjörnsson leikari segir okkur frá Mennsku.

En við byrjum á læknunum Einari Stefánssyni og Gesti Pálssyni. Báðir eiga þeir eiginkonur á hjúkrunarheimilinu Sóltúni en þar stendur til fara í miklar framkvæmdir sem þeir telja eigi eftir íþyngja íbúum. Þeir gagnrýndu þetta harðlega í grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær og bar yfirskriftina, ævikvöld í martröð.

Frumflutt

7. maí 2024

Aðgengilegt til

7. maí 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,