Síðdegisútvarpið

29.nóvember

Í ár innritaðist metjöldi karla í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og við Háskóla Íslands en 26 karlar sóttu um námið og innrituðust. Við ætlum heyra í Gísla Kort Kristóferssyni prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri á eftir en hann hefur leitt vinnu í því fjölga körlum í hjúkrunarfræði.

Jónas Kristjánsson læknir oft kenndur við Náttúrulækningafélagið og heilsuhælið í Hveragerði var merkilegur maður fyrir margra hluta sakir og er komin út bók um lífshlaup hans. Pálmi Jónasson barnabarnabarn Jónasar hefur skirfað söguna ?Að deyja frá betri heimi. Ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis og hann kemur til okkar í þáttinn og segir okkur frá.

Við ætlum líka heyra af jólasveini sem er kominn til byggða þótt enn nóvember en það er Jólaálfurinn Stúfur. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ kemur til okkar og segir okkur frá jólaálfinum.

Er Borgarlínan lest ? Þetta er spurning sem starfsfólk Verkefnastofu Borgarlínunnar fær reglulega og henni er auðsvarað segir Ásdís Kristinsdóttir forstöðumaður verkefnastofunnar en hún kemur til okkar í Síðdegisútvarpið ásamt Bryndísi Friðriksdóttur svæðisstjóra Höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni og við fáum vita svarið í þættinum og mörg önnur svor er tengjast Borgarlínunni.

Verið er undirbúa mótmæli sem fara fram laugardaginn 9.desember næstkomandi á Austurvelli. Þau sem standa þessum mótmælum eru þau Gunnar Ingi Valgeirsson maðurinn á bakvið Lífið á biðlista og Samtök aðstandenda og fíknisjúkra. Við ætlum beina sjónum okkar aðstæðum fíkni sjúkra eftir örstutta stund og til okkar Gunnar Inga en ásamt honum koma hingað til okkar Guðlaug Björk Baldursdóttir og Dagbjört Ósk Steindórsdóttir en þær eru báðar mæður sem glímt hafa við kerfið sökum þess börn þeirra glíma við fíknisjúkdóm.

Frumflutt

29. nóv. 2023

Aðgengilegt til

28. nóv. 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,