Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið 20. nóvember

Það er síðdegisútvarpið sem heilsar á mánudegi, 20. nóvember. Í hljóðveri sitja þau Guðrún Dís og Kristján Freyr

Vinnum gullið er nafn ráðstefnu sem fram fór í dag á Grand hótel í Reykjavík en þar var fjallað um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks. Starfshópur á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins fer með þennan málaflokk og er markmiðið draga úr allri óvissu er varðar framfærslu og ýmis réttindi afreksíþróttafólks. Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir okkur nánar frá því hvernig við vinnum gullið!

Neysluvatnslögnin til Vestmannaeyja er stórskemmd eftir togveiðiskipið Huginn VE missti niður akkeri sem festist í lögninni á föstudagskvöld. Atvikið telst alvarlegt þar sem vatnslögnin er eina flutningsæð neysluvatns til Vestmannaeyja. Við heyrum í bæjarstjóranum, Írisi Róbertsdóttur.

Sjúkraþjálfarinn Fanney Magnúsdóttir vakti athygli á því í hlaðvarpi á dögunum vandamál tengdum grindabotninum ætti ekki vera sama feimnismál og áður. Konur eigi ekki þurfa fela öll sín mál en svo væru grindabotnsvandamál einnig vandamál karla. Þeir geti einnig strítt við þvagleka, risvandamál og allskonar vandamál tengt blöðruhálskirtlinum. Fanney kemur til okkar og ræðir við okkur um grindarbotninn.

Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar verður á línunni hjá okkur. En Landsbjörg hefur óskað eftir aðstoð björgunarsveita af öllu landinu til létta undir með sveitum á suðvesturhorni landsins sem hafa staðið vaktina á Reykjanesskaga vegna jarðhræinganna við Grindavík.

Íslenska hátæknifyrirtækið Carbon Recycling International gangsetti á dögunum eina skilvirkustu efnaverksmiðju í heimi sem endurnýtir 150.000 tonn af koltvísýringi á ári. Verksmiðjan er staðsett í Kína og öll framleiðslutækni byggð á íslensku hugviti sem sannreynd var í verksmiðju CRI í Svartsengi. Við heyrum meira frá Ólafi Stefánssyni verkfræðingi hjá CRI um þetta áhugaverða verkefni.

Mikill skortur hefur verið á ADHD lyfinu Elvanse upp á síðkastið og ekki von á fleiri skömmtum af lyfinu hingað til lands í bráð. Formaður lyfjafræðingafélags Íslands sagði í samtali við Morgunblaðið í dag 7000 manns væru á þessu lyfi hér á landi og í mörgum tilvikum væri verið setja fólk beint á þetta lyf í stað þess prófa önnur lyf áður en hennar sögn stríðir það algerlega gegn verklagsreglum Sjúkratrygginga Íslands því lyfið amfetamínafleiða og því eins nálægt amfetamíni og ADHD lyf verða. Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna er kominn hingað til okkar.

Frumflutt

20. nóv. 2023

Aðgengilegt til

19. nóv. 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,